Fótbolti

Sara Björk og fé­lagar tryggðu sér dýr­mæt þrjú stig í topp­bar­áttunni

Siggeir Ævarsson skrifar
Sara Björk lék allan leikinn á miðjunni hjá Juventus í dag
Sara Björk lék allan leikinn á miðjunni hjá Juventus í dag Visir/Getty

Sara Björk Gunnarsdóttir og félagar hennar í Juventus tryggðu sér þrjú mikilvæg stig í toppbaráttunni í Seríu-A í dag þegar liðið lagði AC Milan, 2-1.

Sara Björk var í byrjunarliði Juventus í dag og lék allan leikinn á miðri miðjunni. Guðný Árnadóttir, sem leikur með AC Milan, var aftur á móti ekki í leikmannahópi liðsins í dag en hún hafði komið við sögu í tíu leikjum liðsins af ellefu fyrir leikinn í dag og byrjað sex þeirra.

Með sigrinum heldur Juventus pressu á toppliði Róma en fjórum stigum munar á liðunum. Róma getur þó aukið við forskotið en liðið, sem er taplaust í deildinni enn sem komið er, tekur þessa stundina á móti Pomigliano sem er í næst neðsta sæti með aðeins einn sigur í sarpnum eftir ellefu umferðir.

Staðan hjá Guðnýju og félögum í AC Milan er aftur á móti ekki upp á marga fiska, en liðið er í 8. sæti sem er fallsæti, með aðeins tíu stig eftir tólf umferðir.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×