Handbolti

„Erum að ströggla lungann úr leiknum sóknar­lega“

Runólfur Trausti Þórhallsson skrifar
Landsliðsþjálfarinn Snorri Steinn.
Landsliðsþjálfarinn Snorri Steinn. Vísir/Vilhelm

„Mér líður ágætlega úr því sem komið var. Held að við verðum að vera glaðir með þetta eina stig,“ sagði landsliðsþjálfarinn Snorri Steinn Guðjónsson um ótrúlegt jafntefli Íslands og Serbíu í fyrsta leik liðanna á EM.

Ísland gerði jafntefli við Serbíu í leik sem erfitt er að setja í orð. Sóknarleikur Íslands hrökk aldrei í gírinn og var Serbía yfir þegar leikurinn var svo gott sem búinn. Á einhvern ótrúlegan hátt tókst strákunum okkar að skora tvö mörk í blálokin og tryggja sér stig sem virtist ekki vera möguleiki, lokatölur 27-27.

„Þetta leik ekkert frábærlega út. Við erum að ströggla lungann úr leiknum sóknarlega. Vörnin og markvarslan dettur svo niður í seinni hálfleik og þá ná þeir þessu forskoti,“ bætti Snorri Steinn við um leikinn og hélt áfram.

„Ég ætla líka að hrósa leikmönnunum. Það er meira en að segja það að snúa svona leik við og ná þessu stigi. Getur skipt öllu máli fyrir okkur, tilfinningin allt önnur en ef við hefðum tapað. Breytir því ekki að við þurfum að kíkja í eigin barm og vera heiðarlegir með að við vorum að ströggla sóknarlega. Serbar samt frábærir í dag, spiluðu dúndur vörn og eru með frábæran markmann.“

„Ég var mjög glaður með varnarleikinn og markvörsluna, lögðum áherslu á það – kannski full mikla áherslu. Hélt kannski að það væri meiri hausverkur heldur en hitt. Mögulega var þetta afraksturinn eða einfaldlega rangt metið hjá mér. Klárlega eitthvað sem við þurfum að laga, sérstaklega sóknarlega.“

„Ég á inni fullt af leikmönnum, gleymið því ekki. Menn geta líka spilað betur og ég hef fulla trú á því að það gerist,“ sagði Snorri Steinn að lokum.

Næsti leikur Íslands er gegn Svartfjallalandi á sunnudag, 14. janúar.

Klippa: Snorri Steinn eftir Serbíuleikinn



Fleiri fréttir

Sjá meira


×