Handbolti

„Náðum aldrei góðum takti“

Ágúst Orri Arnarson skrifar
Viktor varði 15 skot í leiknum.
Viktor varði 15 skot í leiknum. vísir / vilhelm

Viktor Gísli átti frábæran fyrri hálfleik í marki Íslands og hélt liðinu á lífi meðan mörkin létu á sér standa. Í seinni hálfleik minnkaði markvarslan, sem skrifast að mörgu leyti á slakan varnarleik, og allt stefndi í tap gegn Serbíu. 

Svo varð ekki en Ísland sótti eitt dramatískasta jafntefli í manna minnum. Ísland var þremur mörkum undir þegar tvær mínútur voru eftir en tvö þrumuskot Arons Pálmarsonar hleyptu lífi í leikinn og Sigvaldi Björn skoraði svo jöfnunarmarkið þegar fimm sekúndur voru til leiksloka.

Leikurinn byrjaði hægt og færanýting var slök. Viktor Gísli hélt liðinu inn í leiknum með frábærri markvörslu og uppskar fallegt knús frá þjálfara sínum fyrir það. Hann hræddi íslensku þjóðina með smávægilegum veikindum í vikunni en leit út fyrir að vera upp á sitt allra besta í þessum leik. 

„Bara fínn, smá slappleiki. Við ákvaðum að taka þessu mjög örugglega. Slakaði á inni á hótelherbergi í einn dag og var 100% ready fyrir daginn í dag. Mér leið vel frá upphafi og komst í góðan takt. “ sagði Viktor strax að leiknum.

Viktor var ekki sá eini sem varði en markvörður Serba fór einnig mikinn í fyrri hálfleik. 

„Hann lokaði bara búrinu líka skilurðu. Frábær markvörður þarna hinum megin líka, stundum er það þannig. Auðvitað viljum við skora fleiri mörk og nýta færin aðeins betur. Svo var þetta eins hjá þeim í seinni hálfleik, markmennirnir ekki að verja eins mikið. Þetta var bara jafn leikur allan tímann.“

Hann sagði niðurstöðu leiksins þó klárlega mikil vonbrigði og vonast til að liðið geti gert betur í næsta leik. 

„Klárlega [vonbrigði]. Við náðum aldrei góðum takt, kannski aðeins í fyrri hálfleik en við eigum margt inni og  náðum jafntefli gegn góðu liði Serba.“

Klippa: Viktor Gísli eftir Serbíuleikinn

Viðtalið allt við Viktor Gísla má sjá í spilaranum hér fyrir ofan. 

Næsti leikur Íslands er á sunnudaginn kemur gegn Svartfjallalandi og hefst klukkan 17:00. Íþróttadeild Sýnar er í München og mun fjalla ítarlega um allt sem tengist EM í máli og myndum.


Tengdar fréttir

Umfjöllun: Ísland - Serbía 27-27 | Ótrúlegur endir tryggði stig

Ísland byrjar EM karla í handbolta á einu dramatískasta jafntefli síðari ára. Liðið var tveimur mörkum undir þegar nokkrar sekúndur lifðu leiks en á einhvern ótrúlegan hátt tryggði Sigvaldi Björn Guðjónsson stig með marki úr hraðaupphlaupi í blálokin.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×