Innlent

Aldrei oftar verið stigið inn í Strætó

Atli Ísleifsson skrifar
Um nokkra fjölgun var að ræða milli ára.
Um nokkra fjölgun var að ræða milli ára. Vísir/Vilhelm

Aldrei hafa fleiri innstig mælst yfir árið í strætisvögnum á höfuðborgarsvæðinu en á síðasta ári síðan reglulegar mælingar hófust. 

Í tilkynningu frá Strætó segir að yfir allt árið hafi um 12,64 milljónir innstiga mælst en áður var metið árið 2019 sem var með 12,18 milljón innstiga.

„Nokkrir metmánuðir voru einnig á árinu en alls voru sex mánuðir á árinu þar sem aldrei hafa mælst fleiri innstig í þeim mánuði áður, þetta voru janúar, mars, apríl, júní, nóvember og desember. 

Þar að auki var mars 2023 metmánuður allra mánaða þar sem aldrei áður hafa mælst jafn mörg innstig í neinum mánuði áður,“ segir í tilkynningunni. 

Strætó


Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×