Fréttir

Skorar á Fjarðabyggð að draga til baka stuðning við jarð­göng

Kristján Már Unnarsson skrifar
Fyrirhugaður munni Fjarðarheiðarganga í Seyðisfirði.
Fyrirhugaður munni Fjarðarheiðarganga í Seyðisfirði. Vegagerðin

Forsvarsmaður undirskriftasöfnunar um breytta forgangsröðun jarðganga á Austfjörðum, Mjófirðingurinn Erlendur Magnús Jóhannsson, skorar á bæjarfulltrúa Fjarðabyggðar að draga til baka stuðning Fjarðabyggðar innan Sambands sveitarfélaga á Austurlandi við Fjarðarheiðargöng. Jafnframt hvetur hann þá til þess að fara fram á nýja úttekt á gangnakostum á Mið-Austurlandi.

Mjófirðingurinn vekur athygli á því í yfirlýsingu að yfir eittþúsund undirskriftir séu komnar til stuðnings áskorun til samgönguyfirvalda um að setja Fjarðagöng í forgang á samgönguáætlun, tvenn göng sem tengja myndu Seyðisfjörð og Norðfjörð um Mjóafjörð. Slík göng yrðu þannig sett fram fyrir Fjarðarheiðargöng, milli Seyðisfjarðar og Egilsstaða, sem núna eru áformuð sem næstu jarðgöng á samgönguáætlun.

Séð yfir byggðina í Mjóafirði. Einu samgöngurnar þangað að vetrarlagi eru sjóleiðis með báti frá Norðfirði. Fjarðagöng myndu rjúfa vetrareinangrun Mjóafjarðar landleiðina.Einar Árnason

„Einnig sendi ég opið bréf á alla kjörna fulltrúa Fjarðabyggðar þar sem er skorað á þá að draga samþykki innan Sambands sveitarfélaga á Austurlandi um að Fjarðarheiðargöng verði næst á samgönguáætlun til baka og fari fram á að ný úttekt verði gerð á gangnakostum á Mið-Austurlandi og Fjarðagöng verði sett í forgang á samgönguáætlun,“ segir Erlendur Magnús, sem búsettur er á Norðfirði.

Tvenn jarðgöng milli Seyðisfjarðar og Norðfjarðar um Mjóafjörð skapa hringleið milli byggða Mið-Austurlands, rjúfa vetrareinangrun Mjóafjarðar og tryggja Seyðisfirði láglendistengingu við þjóðvegakerfið.Grafík/Sara Rut Fannarsdóttir

Undirskriftasöfnunina hóf hann á vefsíðunni Ísland.is þann 23. nóvember síðastliðinn. Söfnuninni lýkur þann 1. febrúar næstkomandi.

Fjallað var um þann ágreining sem er meðal Austfirðinga um jarðgangakostina í þættinum Ísland í dag í fyrra. Þáttinn má sjá hér:


Tengdar fréttir

Vilja Fjarðagöng fremur en Fjarðarheiðargöng

Undirskriftasöfnun er hafin á netinu þar sem skorað er á samgönguyfirvöld að setja Fjarðagöng á Austfjörðum í forgang á samgönguáætlun, tvenn göng sem tengja myndu Seyðisfjörð og Norðfjörð um Mjóafjörð. Slík göng yrðu þannig sett fram fyrir Fjarðarheiðargöng, milli Seyðisfjarðar og Egilsstaða, sem núna eru áformuð sem næstu jarðgöng á samgönguáætlun.

Hringtenging með göngum nauðsynleg

Nauðsynlegt er að ráðast í göng milli Seyðisfjarðar og Mjóafjarðar og Mjóafjarðar og Norðfjarðar um leið og göng yfir Fjarðarheiði líta dagsins ljós, svo hægt sé að ná hringtengingu á Austurlandi, ellegar sé erfitt að líta á svæðið sem eitt sameiginlegt atvinnusvæði. Þetta segir sveitastjóri Múlaþings. Skynsamlegast væri að fylgja Færeyingum í gangagerð. 

Jarðgöng undir Fjarðarheiði talin kosta 46,3 milljarða króna

Kostnaður við fyrirhuguð Fjarðarheiðargöng milli Egilsstaða og Seyðisfjarðar er núna áætlaður 46,3 milljarðar króna, miðað við verðlag í október 2022. Þetta kom fram í erindi sérfræðings Vegagerðarinnar á opnum fjarfundi sem sveitarfélagið Múlaþing stóð fyrir síðdegis.

Tvenn göng á Mið-Austurlandi áætluð sjö milljörðum ódýrari

Ákvörðun um lengstu og dýrustu veggöng Íslands, Fjarðarheiðargöng til Seyðisfjarðar, bíður Alþingis núna á vordögum. Annar valkostur, sem margir Austfirðingar hallast fremur að, tvenn göng milli Seyðisfjarðar og Norðfjarðar, yrði hins vegar sjö milljörðum króna ódýrari, að mati Vegagerðarinnar.

Segir alþingismenn hafa verið blekkta við val næstu jarðganga

Svæðisstjóri Vegagerðarinnar á Austurlandi til fjörutíu ára segir enga sátt ríkja í fjórðungnum um gerð Fjarðarheiðarganga og telur að alþingismenn hafi verið blekktir til að setja þau í forgang. Talsmaður Seyðfirðinga segir málið hins vegar útrætt og niðurstaða liggi fyrir um að þau verði næstu jarðgöng á Íslandi.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×