Innlent

Stjórnar­sam­starfi VG og Sjálf­stæðis­flokksins í sjálfu sér lokið

Margrét Björk Jónsdóttir og Oddur Ævar Gunnarsson skrifa
Eiríkur Bergmann, stjórnmálafræðiprófessor.
Eiríkur Bergmann, stjórnmálafræðiprófessor. Vísir/Vilhelm

Prófessor í stjórnmálafræði segir mjög alvarlega stöðu komna upp innan ríkisstjórnarinnar. Óvíst er hvort ríkisstjórnin muni hanga saman fram að kosningum eða springa, en ljóst sé að stjórnarsamstarfi Vinstri grænna og Sjálfstæðisflokknum sé í sjálfu sér lokið.

„Það er komin upp mjög alvarleg staða innan ríkisstjórnarinnar þegar þingmenn stjórnarflokkanna eru farnir að hafa frumkvæði að því sjálfir að lýsa efasemdum sínum um að geta stutt vantrausttillögu,“ segir Eiríkur Bergmann, stjórnmálafræðiprófessor í samtali við fréttastofu.

Mikil ólga hefur verið meðal þingmanna í kjölfar álits umboðsmanns Alþingis um að Svandís Svavarsdóttir matvælaráðherra hafi ekki farið að lögum þegar hún stöðvaði veiðar á langreyðum í sumar degi áður en þær áttu að hefjast. Leiðtogar stjórnarandstöðunnar hafa staðfest að þeir hyggist leggja fram vantraust á ráðherra ef stjórnvöld grípa ekki til ráðstafana að eigin frumkvæði.

Grein Óla Björns Kárasonar þingmanns Sjálfstæðisflokksins og fyrrverandi þingflokksformanns, í Morgunblaðinu í dag, virðist benda til þess að að minnsta kosti einhverjir þingmenn Sjálfstæðisflokksins myndu styðja tillöguna.

„Það hefur í sjálfu sér sér áður gerst, að einstaka þingmenn hafa hætt að styðja þá ríkisstjórn sem flokkurinn stendur að. Nærtækast væri einfaldlega að nefna ríkisstjórn Samfylkingarinnar og Vinstri grænna þar sem þingmenn VG létu af stuðningi við þá ríkisstjorn. Sumir sögðu sig úr flokknum sem er kannski hreinlegasta leiðin við slíkt ástand. En þetta sýnir klemmuna sem ríkisstjórnin er komin í.“

Blasir við að það styttist í kosningar

Eiríkur segir það blasa við að það styttist í kosningar og beri að skoða ummæli Óla Björns í því ljósi. Flokkarnir séu að setja sig í stellingar fyrir nýja kosningabaráttu.

„Þessi ríkisstjórn mun ekki halda áfram eftir kosningar, ég held að það blasi algjörlega við. Í það minnsta geta Sjálfstæðisflokkurinn og Vinstri grænir sennilega ekki hugsað sér áframhaldandi stjórnarsamstarf. Þannig að því samstarfi er í sjálfu sér lokið, einfaldlega nú þegar. Hvort að ríkisstjórnin haldi áfram fram að kjördegi eða springi fyrr, ég held að það eigi einfaldlega eftir að koma í ljós.“



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×