Lífið

Anton vill tæpar 600 milljónir fyrir nýja einbýlið

Svava Marín Óskarsdóttir skrifar
Anton Kristinn Þórarinsson keypti einbýlishús á Haukanesi árið 2020 á 120 milljónir króna og lét rífa það. Bygging á nýja húsinu hefur staðið yfir í þrjú ár og sér nú fyrir endann á.
Anton Kristinn Þórarinsson keypti einbýlishús á Haukanesi árið 2020 á 120 milljónir króna og lét rífa það. Bygging á nýja húsinu hefur staðið yfir í þrjú ár og sér nú fyrir endann á. Vísir/Vilhelm

Anton Kristinn Þórarinsson hefur sett verðmiða á risastórt einbýlishús sem hann hefur verið með í smíðum á Arnarnesinu undanfarin ár. Anton Kristinn vill 590 milljónir króna fyrir húsið en fasteignamat þess er upp á 258 milljónir króna. Húsið er það langdýrasta til sölu á Íslandi um þessar mundir.

Anton Kristinn, sem var um tíma á meðal sakborninga í Rauðagerðismálinu svokallaða en var ekki meðal ákærðu. Hann hlaut dóm fyrir vopna- og fíkniefnalagabrot árið 2021, setti húsið á sölu í desember. Þá var óskað eftir tilboðum í húsið sem stendur við Haukanes á Arnarnesi.

REMAX hefur húsið til sölu.Fasteignaljósmyndun

Nú er kominn verðmiði á húsið sem er mjög langt komið í byggingu. Það er 621 fermetrar að stærð svo sett fermetraverðið er tæp milljón á fermetra. Frágangur á lóðinni sem snýr að sjónum er eftir miðað við myndir á fasteignavef Vísis.

Tölvugerð mynd af húsinu.Fasteignaljósmyndun

Húsið er á tveimur hæðum. Á efri hæðinni er meðal annars að finna bílskúr, fataherbergi, hjónasvítu, sjónvarpshol og stóra skrifstofu.

Tölvugerð mynd af húsinu í vetrarbúningi.Fasteignaljósmyndun

Á neðri hæðinni er síðan að finna tvö svefnherbergi, stóra geymslu, stórt opið afþreyingarrými, tæknirými auk herbergja sem eru hugsuð sem kvikmyndaherbergi og leikherbergi.

Hægt verður að fylgjast með sólsetrinu úr húsinu.Fasteignaljósmyndun

Jafnframt kemur fram að af neðri hæðinni sé útgengt út á lóðina og niður í fjöru, en samkvæmt seljanda er þar heimilt að setja bátaskýli á lóðina.

Húsið er á tæplega 1500 fermetra lóð.Fasteignaljósmyndun

Ljóst er að ef húsið selst á 590 milljónir króna verður um að ræða eitt dýrasta einbýlishús sem selst hefur í sögu landsins. Dýrustu hús landsins undanfarin ár hafa verið að fara á innan við 400 milljónir króna.

Nánar á fasteignavef Vísis.


Tengdar fréttir

Toni setur ókláraða höll á Arnarnesi á sölu

Anton Kristinn Þórarinsson, einnig þekktur sem Toni, hefur sett glæsilegt einbýlishús sitt á Arnarnesinu í Garðabæ á sölu. Húsið, sem er enn í byggingu, telur rúma 620 fermetra á tæplega 1500 fermetra lóð, en fasteignamat þess er 258 milljónir króna, og brunabótamat tæpar 138 milljónir.

Anton Kristinn og sakborningar féllust í faðma

Anton Kristinn Þórarinsson, sem sætti gæsluvarðhaldi í Rauðagerðismálinu en var ekki ákærður, fagnaði með sakborningum sem sýknaðir voru í Héraðsdómi Reykjavíkur í morgun. Anton féllst í faðma með ákærðu í morgun.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×