Handbolti

Svartfellingar töpuðu aftur

Siggeir Ævarsson skrifar
Svartfellingar virðast vera í basli með vináttulandsleiki sína
Svartfellingar virðast vera í basli með vináttulandsleiki sína Nordic Photos / AFP

Svartfjallaland tapaði sínum öðrum vináttulandsleik í röð þegar liðið tapaði gegn Slóvenínu, 37-32.

Svartfellingar eru meðal mótherja Íslands í C-riðli á Evrópumótinu í handbolta hefst í næstu viku en liðin sem keppa á mótinu eru nú í óðaönn að slípa sig saman áður en mótið hefst. Slóvenar munu leika í B-riðli ásamt Norðmönnum, Færeyingum og Pólverjum.

Eftir nokkuð jafnan fyrri hálfleik náðu Slóvenar upp fjögurra marka forskoti áður en flautað var til hálfleiks og staðan 19-15 þeim í vil.

Svartfellingar náðu að halda stöðunni í horfinu til að byrja með en eftir því sem leið á seinni hálfleikinn hertu Slóvenar tök sín á leiknum og náðu mest átta marka forskoti og fóru að lokum með fimm marka sigur af hólmi, lokatölur 37-32.

Þetta var síðasti æfingaleikur Svartfellinga fyrir Evrópumótið en fyrsti leikur liðsins í riðlinum er eftir viku, 12. janúar, þegar liðið mætir Ungverjalandi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×