Innlent

Bendi ekki til tengsla við sjálfsvígshugsanir

Oddur Ævar Gunnarsson skrifar
Lyfin hafa notið gríðarlegra vinsælda.
Lyfin hafa notið gríðarlegra vinsælda. EPA-EFE/Ida Marie Odgaard

Viðamikil bandarísk rannsókn bendir til þess að engin tengsl séu á milli notkunar sykursýkis-og megrunarlyfjanna Ozempic og Wegovy og aukinnar tíðni sjálfsskaða-og sjálfsvígshugsana.

Reuters greinir frá en í umfjöllun miðilsins kemur fram að rannsóknin nái til 1,8 milljóna sjúklinga. Lyfin njóta gríðarlegra vinsælda og innihalda virka efnið semaglútín sem stemma stigu við blóðsykursmagni í líkamanum og slá á hungurtilfinningu.

Áður hefur Lyfjastofnun Evrópu fengið ábendingu frá Lyfjastofnun Íslands um möguleg tengsl milli lyfjanna og sjálfsvígs-og sjálfsskaðahugsana. Sagði forstjóri Lyfjastofnunar við fréttastofu að um væri að ræða neytendavernd.

Í umfjöllun Reuters kemur fram að rannsóknin, þar sem skoðuð voru gögn fleiri en 1,8 milljóna sjúklinga, til þess að hið gagnstæða sé raunin. Sjúklingar á lyfjunum séu ólíklegri en aðrir í svipaðri meðferð til þess að upplifa sjálfsvígs-og sjálfsskaðahugsanir.

Fram kemur að 53 þúsund manns á Wegovy hafi verið bornir saman við sambærilega sjúklinga á öðrum megrunarlyfjum. Á fyrstu sex mánuðum á lyfinu hafi 0,11 prósent fundið fyrir sjálfsskaða-og sjálfsvígshugsunum en 0,43 prósent sjúklinga í hinum hópnum.

Að teknu tilliti til annarra þátta hafi 73 prósent færri sjúklinga á Wegovy upplifað slíkar hugsanir en hinna lyfjanna. Segir í umfjöllun Reuters að tölurnar hafi verið sambærilegar fyrir Ozempic. Tekið er fram að rannsóknin sanni ekki með endanlegum hætti að lyfin valdi ekki slíkum hugsunum, en ætti þó að verða til þess að lægja áhyggjur af tengslunum.

„Gríðarlegar vinsældir þessara lyfja gera það að verkum að það er nauðsynlegt að skilja þau til hlýtar,“ segir Pamela Davis, einn af vísindamönnunum á bakvið rannsóknina.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×