Innlent

Segir lög­­reglu­­stjórann á Vest­fjörðum van­hæfan í málinu

Helena Rós Sturludóttir skrifar
Gunnar Örn Petersen, framkvæmdastjóri Landssambands veiðifélaga. 
Gunnar Örn Petersen, framkvæmdastjóri Landssambands veiðifélaga.  Landssamband veiðifélaga

Landssamband veiðifélaga hyggst kæra ákvörðun lögreglustjórans á Vestfjörðum um að hætta rannsókn á slysasleppingu eldislax úr fiskeldisstöð Arcitc Sea Farm í Patreksfirði í ágúst. Framkvæmdastjóri sambandsins segir ljóst að vanhæfi lögreglustjórans á Vestfjörðum í þessu máli sé algjört.

Í síðustu viku greindi lögreglan á Vestfjörðum frá því að rannsókn væri hætt á slysasleppingu eldislax úr fiskeldisstöð Actic Sea Farm ehf í Kvígindisdal í Patreksfirði í í ágúst síðastliðnum. 

Tvö göt fundust á einni kví eldisfélagsins og um þrjú þúsund og fimm hundruð frjóir norskir eldislaxar sluppu. Í kjölfarið fundust fiskarnir í laxveiðiám víða um land og vakti málið hörð viðbrögð. Matvælastofnun kærði málið til lögreglu í september.

Ákvörðunin mikil vonbrigði

Gunnar Örn Petersen, framkvæmdastjóri Landssambands veiðifélaga, segir ákvörðun lögreglustjórans á Vestfjörðum um að hætta rannsókn vera gríðarleg vonbrigði. 

„Það er alveg ljóst að vanhæfi lögreglustjórans á Vestfjörðum í þessu máli er algjört. Af ákvörðuninni að dæma er erfitt að sjá hvort er meira ráðandi að lögreglustjórinn sé almennt vanhæfur til að fjalla um svona mál vegna skorts á þekkingu á lögum og lögskýringum eða hvort hann sé sérstaklega vanhæfur í þessu máli vegna aðstæðna og hvort tveggja virðist eiga við þegar maður les ákvörðunina,“ segir Gunnar. 

Vankunnátta og misskilningur

Að sögn Gunnars er stærsti þátturinn vankunnátta og misskilningur á túlkun refsiheimildar 22. gr. laga um fiskeldi. „Þar sem meginreglu um saknæmi er ruglað saman og síðan muninum á almennum refsimörkum og sérrefsimörkum. Það er auðvitað mjög alvarlegt ef rannsakandi býr ekki yfir slíkri þekkingu á lögum og lögskýringu.“

Gunnar segir ljóst að lög hafi verið brotin. „Brotið hefur verið gegn lögum um fiskeldi og ef ekki verður refsað fyrir þetta stærsta umhverfisslys sem orðið hefur hér á landi þá er alveg ljóst að lögin ná ekki markmiði sínu,“ segir hann. 

Ætla kæra innan mánaðar

Landssamband veiðifélaga muni kæra ákvörðun lögreglustjórans á Vestfjörðum. „Við munum hafa það í okkar kröfu að annar rannsakandi verði skipaður í málinu vegna þess að við teljum einfaldlega að lögreglustjórinn á Vestfjörðum sé einfaldlega ekki hæfur.“

Gunnar segir ákvörðunina ekki hafa komið neitt sérstaklega að óvart vegna stöðunnar sem uppi er á Vestfjörðum. „Síðan hefur það sýnt sig líka erlendis að samfélög sem lenda undir hælnum á svona stórum fyrirtækjum verða ð nokkru leyti lömuð þar sem embættismenn og íbúar samfélaganna þora ekki að stíga upp á móti fyrirtækjunum og stjórn þeirra. Í þessu tilfelli hafa stjórnendur líka mjög mikið pólitískt afl á bakvið sig og slíkt getur náttúrulega valdið vanhæfi,“ segir Gunnar jafnframt. 


Tengdar fréttir

Sagðist hataður af fiskeldisfyrirtækjum og skammaður af mótmælendum

Fjölmenn mótmæli gegn sjókvíaeldi á Íslandi fóru fram á Austurvelli í dag. Guðlaugur Þór Þórðarsson umhverfisráðherra þakkaði mótmælendum fyrir mætingu en fékk kaldar kveðjur til baka. Bubbi Morthens sagði Svandísi Svavarsdóttur matvælaráðherra eina ráðherrann sem væri að standa sig.

„Eitthvað sem við getum ekki samþykkt og þessu verður að linna“

Framkvæmdastjóri Landssambands veiðifélaga býst við miklu fjölmenni á Austurvelli í dag þegar sjókvíaeldi verður mótmælt. Síðasta slysaslepping hjá Arctic Fish og afleiðingar hennar hafi fyllt mælinn og þessu verði að linna. Sýnt verður frá mótmælunum í beinni á Vísi á eftir. 

Segja sjó­kvía­eldi hafa verið stundað leyfis­laust í tvo mánuði

Náttúruverndarsamtökin „Laxinn lifi“ segja Artic Sea Farm hafa stundað sjókvíaeldi í Patreksfirði og Tálknafirði leyfislaust í tvo mánuði. Samtökin segja að leyfið virðist hafa runnið út og krefjast þess að starfseminni verði þá þegar hætt.

Andstæðingar sjókvíaeldis æfir vegna ákvörðunar Helga

Á forsíðu nýs tölublaðs Veiðimannsins, tímariti Stangaveiðifélags Reykjavíkur, er mynd eftir Gunnar Karlsson þar sem sjókvíaeldið er teiknað upp sem ókindin í íslenskri náttúru. Niðurstaða Helga Jenssonar lögreglustjóra á Vestfjörðum, sú að fella niður rannsókn á slysasleppingum fyrir vestan, kemur illa við andstæðinga sjókvíaeldis.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×