Lífið

Stjörnulífið: Há­tíðar­höld, seiðandi kjólar og raf­rænar jóla­kveðjur

Svava Marín Óskarsdóttir skrifar
Stjörnur landsins virðast hafa notið jólahátíðarinnar í faðmi fjölskyldu og vina.
Stjörnur landsins virðast hafa notið jólahátíðarinnar í faðmi fjölskyldu og vina.

Jólahald og hátíðarkveðjur var áberandi á samfélagsmiðlum hjá stjörnum landsins sem virðast hafa notið jólahátíðarinnar.

Fjöldi þjóðþekktra einstaklinga sendu rafrænar hátíðarkveðjur af fjölskyldunni prúðbúinni við jólatréð eða jafnvel á náttfötunum.

Katrín Tanja Davíðsdóttir og kærasti hennar Brooks Laich sendu skemmtilega jólakveðju.

Patrek Jaime sendi kveðju á spænsku.

„Út með illsku og hatur, inn með gleði og frið. Gleðileg jól,“ skrifar tónlistarmaðurinn Jón Jónsson við fallega mynd af fjölskyldu sinni við jólatréð. Hann vísar þar til jólalags Pálma Gunnarsonar, Friðarjól.

Listaparið Júlí Heiðar Halldórsson og Þórdís Björk Þorfinnsdóttir senda vinum og óvinum jólaveðju

Katrín Edda Þorsteinsdóttir birti mynd af fjölskyldunni á náttfötunum.

Fyrstu jól dóttur Ástrósar Trausta og Adams Helgasonar voru haldin heima.

Falleg vinátta

Þorvaldur Davíð Kristjánsson leikari fer fögrum orðum um vin sinn og grínistann Sóla Hólm.

Dansað á jóladegi

Systurnar Eva Ruza og Tinna Miljevic dönsuðu úti í snjónum á jóladegi.

Tónleikahald

Tónleikahald var áberandi í vikunni og má þar nefna Jólagesti Björgvins Halldórssonar, Bríet og Heima um jólin með Friðriki Ómari Hjörleifssyni, ásamt gestum í Hörpu. Þá þakkar Friðrik gestum sínum fyrir komuna og óskar þeim gleðilegra jóla.

Svala Björgvins kom fram á tónleikum föður síns ásamt tónlistarkonunni Guðrúnu Ýr Eyfjörð, eða GDRN.

Seiðandi á jólunum

Sunneva Einars birti seiðandi mynd af sér við jólatréð.

Ísdrottningin í Búlgaríu

Ásdís Rán Gunnarsdóttir fagnaði jólahátíðinni í faðmi kærastans Þórðar Daníel Þórðarsonar í Búlgaríu en stefnir á fagna nýju ári á Íslandi. 

Jól í frönsku ölpunum

Tónlistarmaðurinn Patrik Atlason, eða Prettyboitjokkó, hélt upp á jólin á skíðum í Frakklandi ásamt fjölskyldu og vinum. Þar á meðal er Gústi B og Adam Ægir Pálsson. Þá tróð Patrik upp fyrir gesti skíðasvæðisins ber að ofan.


Tengdar fréttir

Stjörnulífið: Jólagleði, rauðar varir og IceGuys

Stórafmæli, tónleikar og almennur jólaundirbúningur var áberandi hjá stjörnum landsins í liðinni viku. Stjörnulögfræðingurinn Villi Vill fór út á lífið á Ítalíu með knattspyrnumanninum Alberti Guðmundssyni, Sigga Beinteins og kærastan hennar, Eygló Rós fóru á Kjarval á meðan Logi Bergmann skemmti sér á tónleikum Auðar í Iðnó á laugardagskvöldið.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×