Lífið

Berg­lind Björg og Kristján eignuðust dreng

Svava Marín Óskarsdóttir skrifar
Berglind Björg segist ekki hætt í knattspyrnu þó það sé nokkuð langt þangað til hún snúi aftur út á völl.
Berglind Björg segist ekki hætt í knattspyrnu þó það sé nokkuð langt þangað til hún snúi aftur út á völl. Skjáskot/Berglind Björg

Landsliðsframherjinn Berglind Björg Þorvaldsdóttir, leikmaður París Saint-Germain í Frakklandi, og kærasti hennar, Kristján Sigurðsson slökkviliðsmaður eignuðust frumburð sinn 8. desember síðastliðinn. 

Parið greindi frá komu drengsins í sameiginlegri færslu á Instagram.

Berglind greindi frá óléttuni í byrjun júní þar sem hún tók skýrt fram að hún væri hvergi nærri hætt í knattspyrnu. „Nei, ég er ekki hætt,“ skrifaði hún við mynd af sér og Kristjáni með sónarmynd í hönd.

Eyjamærin Berglind hefur verið alveg skýr með það að hún ætli að snúa aftur á knattspyrnuvöllinn eftir barnsburð. Framherjinn 31 árs gamli hefur komið víða við á sínum ferli og spilað með stórliðum á borð við PSV í Hollandi, AC Milan á Ítalíu og Brann í Noregi. Þá hefur hún spilað fyrir Breiðablik, ÍBV og Fylki hér á landi.

Hún á að baki 72 A-landsleiki og hefur skorað í þeim 12 mörk. Þar á meðal mark Íslands í 1-1 jafnteflinu gegn Belgíu á EM sumarið 2022.


Tengdar fréttir

Óborganlegt upphaf steypiboðs Berglindar Bjargar

Berglind Björg Þorvaldsdóttir hrökk í kút með óborganlegum hætti þegar vinkonur hennar komu henni á óvart með steypiboði í dag. Uppákoman náðist sem betur fer á myndband fyrir þá sem hafa gaman af því að hlæja.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×