Lífið

Sigga Beinteins slær sér upp

Svava Marín Óskarsdóttir skrifar
Sigga Beinteins er ein allra besta söngkona landsins, mikill stuðbolti og gleðigjafi.
Sigga Beinteins er ein allra besta söngkona landsins, mikill stuðbolti og gleðigjafi. Vísir/Hulda Margrét

Söngdívan Sigríður Beinteinsdóttir er komin með glæsilega konu upp á arminn. Sú heppna heitir Eygló Rós Glódís Agnarsdóttir og ljóst að þar er á ferðinni eitt glæsilegasta par landsins.

Sigga Beinteins er án nokkurs vafa ein stærsta Eurovisionstjarna Íslands eftir að hafa keppt þrisvar fyrir Íslands hönd með frábærum árangri. Stjórnin hennar Siggu er enn í fullu fjöri og treður hljómsveitin upp á tyllidögum aðdáendum til mikillar gleði.

Sigga fór á kostum á jólatónleikum Baggalúts um helgina en fann líka tíma með sinni heittelskuðu Eygló, meðal annars á vinnustofu Kjarvals sem er einn vinsælasti djammstaður fræga fólksins.

Fegurðin um helgina var að sjálfsögðu fest á filmu.

Þar létu þær Eygló Ósk vel að hvor annarri í för með fleiri fegurðardísum á borð við Kolbrúnu Pálínu Helgadóttur, Sonju Backmann og Elínu Reynisdóttur förðunardrottningu landsins. Sigga og Eygló vöktu mikla athygli og fólk duglegt að birta myndir af píunum á samfélagsmiðlum.

Eygló er framkvæmdastjóri fasteignasviðs Þórsgarðs ehf. og mikill stuðbolti, eins og Sigga sem vill svo sannarlega lifa lífinu, eins og segir í einum vinsælasta smelli Stjórnarinnar. Sigga varð 61 árs í sumar og Eygló 46 ára í haust.

Sigga mætti í viðtal í Bakaríið á Bylgjunni á dögunum með fegurðardísinni Lindu Pétursdóttur þar sem þær hlógu að slúðursögum að þær væru að slá sér upp.

Þá var Sigga á meðal viðmælenda Auðuns Blöndal í Tónlistarmennirnir okkar á árinu.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×