Lífið

Toni setur ókláraða höll á Arnar­nesi á sölu

Jón Þór Stefánsson skrifar
Hús Antons á Arnarnesinu er óklárað.
Hús Antons á Arnarnesinu er óklárað. Fasteignaljósmyndun.is/Vísir/Vilhelm

Anton Kristinn Þórarinsson, einnig þekktur sem Toni, hefur sett glæsilegt einbýlishús sitt á Arnarnesinu í Garðabæ á sölu. Húsið, sem er enn í byggingu, telur rúma 620 fermetra á tæplega 1500 fermetra lóð, en fasteignamat þess er 258 milljónir króna, og brunabótamat tæpar 138 milljónir.

Á fasteignavef Vísis kemur fram að í húsinu séu fimm svefnherbergi og fimm baðherbergi. Húsið er hannað af Kristni Ragnarssyni hjá arkítektúrstofunni KRark.

Húsið er á tveimur hæðum. Á efri hæðinni er meðal annars að finna bílskúr, fataherbergi, hjónasvítu, sjónvarpshol og stóra skrifstofu.

Á neðri hæðinni er síðan að finna tvö svefnherbergi, stóra geymslu, stórt opið afþreyingarrými, tæknirými auk herbergja sem eru hugsuð sem kvikmyndaherbergi og leikherbergi.

Jafnframt kemur fram að af neðri hæðinni sé útgengt út á lóðina og niður í fjöru, en samkvæmt seljanda er þar heimilt að setja bátaskýli á lóðina.

Húsið telur rúma 620 fermetra og er á tæplega 1500 hundruð fermetra lóð.Fasteignaljósmyndun.is
Af neðri hæðinni er útgengt út á lóðina og niður í fjöru þar sem er heimilt að setja bátaskýli á lóðina.Fasteignaljósmyndun.is

Anton var vitni í Rauðagerðismálinu svokallaða, þar sem albanskur karlmaður var skotinn til bana fyrir utan heimili sitt í Reykjavík í febrúar árið 2021. Hann var um tíma sakborningur í málinu og í gæsluvarðhaldi vegna þess, en var ekki ákærður. Verjandi hans, Steinbergur Finnbogason, gagnrýndi lögreglu harðlega fyrir vinnubrögð sín í málinu.

Sama ár játaði Anton fíkniefna- og vopnalagabrot með því að hafa í fórum sínum þrjú rafmagnsvopn og kókaín á heimili sínu í Akrahverfinu í Garðabæ.


Tengdar fréttir

Lögmaður Antons harðorður: „Mesta klúður sem ég hef séð“

Steinbergur Finnbogason lögmaður vill meina að rannsókn lögreglu á Rauðagerðismálinu sé eitt það mesta klúður sem hann hefur orðið vitni að. Hann boðar skaðabótamál fyrir hönd Antons Kristins Þórarinssonar, skjólastæðins síns.

Anton Kristinn játar brot og fær 175 þúsund króna sekt

Aðalmeðferð í máli Antons Kristins Þórarinssonar fór fram í Héraðsdómi Reykjaness í dag. Anton játaði brot í tveimur af þremur ákæruliðum og var þar dæmdur til að greiða 175 þúsund króna sekt fyrir að hafa brotið fíkniefna- og vopnalagabrot.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×