Lífið

Helga Þóra og Brynjar í ClubDub slá sér upp

Svava Marín Óskarsdóttir skrifar
Helga Þóra og Brynjar hafa sést víða saman undanfarnar vikur.
Helga Þóra og Brynjar hafa sést víða saman undanfarnar vikur. Róbert Arnar

Helga Þóra Bjarnadóttir, MRingur og tískuáhugakona, og Brynjar Barkason meðlimur ClubDub, eru að stinga saman nefjum. Parið hefur sést víða saman undanfarnar vikur ásamt því að deila myndum af hvort öðru á samfélagsmiðlum.

Parið mætti saman í afmæli Gústa B liðna helgi þar sem þau létu vel að hvort öðru. Helga er fædd árið 2004 og Brynjar 1996.

Helga Þóra þykir ein glæsilegasta kona landsins líkt og Þóra Margrét Baldvinsdóttir móðir hennar og eiginkona Bjarna Benediktssonar utanríkisráðherra. 

ClubDub er íslenskt pop- og raftónlistartvíeyki sem samanstendur af þeim Brynjari og Aroni Kristni Jónssyni. 

Hljómsveitina stofnuðu þeir árið 2018 eftir brottrekstur þeirra beggja úr Verzlunarskóla Íslands árinu áður. 


Tengdar fréttir

„Í dag vil ég helst vera í minni eigin tísku­búbblu“

MRingurinn og tískuáhugakonan Helga Þóra Bjarnadóttir elskar hvað tískan er breytileg og hvað hún getur haft jákvæð áhrif á líðan fólks. Hún segir mikilvægt að velja föt sem láta manni líða vel í staðinn fyrir að elta stöðugt tískubylgjur og hefur lært það með aldrinum. Helga Þóra er viðmælandi vikunnar í Tískutali.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×