Madrídingar með fullt hús stiga eftir endurkomusigur Hjörtur Leó Guðjónsson skrifar 12. desember 2023 22:16 Dani Ceballos tryggði Real Madrid sigur í kvöld. David S.Bustamante/Soccrates/Getty Images Real Madrid endaði riðlakeppni Meistaradeildar Evrópu með fullt hús stiga eftir ótrúlegan endurkomusigur gegn Union Berlin í C-riðli í kvöld.
Madrídingar fengu gullið tækifæri til að taka forystuna á lokamínútu venjulegs leiktíma í fyrri hálfleik þegar liðið fékk vítaspyrnu. Luka Modric fór á punktinn, en Króatinn margreyndi lét verja frá sér. Berlínarliðið var ekki lengi að refsa og tók forystuna strax í næstu sókn með marki frá Kevin Volland og heimamenn fóru því með 1-0 forystu inn í hálfleikinn. Joselu jafnaði þó metin fyrir Madrídinga á 61. mínútu og hann var aftur á ferðinni þegar hann kom liðinu yfir með marki rúmum tíu mínútum síðar. Varamaðurinn Alex Kral jafnaði hins vegar metin á ný fyrir Union Berlin þegar aðeins fimm mínútur voru eftir af venjulegum leiktíma, en Dani Ceballos tryggði Madrídingum dramatískan sigur með marki á 89. mínútu. Real Madrid endar því með 18 stig af 18 mögulegum í C-riðli og er á leið í 16-liða úrslit upp úr C-riðli, ásamt Napoli sem vann 2-0 sigur gegn SC Braga á sama tíma. Þá vann Benfica 1-3 sigur gegn Salzburg í D-riðli og Inter og Real Sociedad gerðu markalaust jafntefli. Inter og Real Sociedad höfðu þegar tryggt sér sæti í 16-liða úrslitum.
Meistaradeild Evrópu í fótbolta karla Mest lesið Kvaddi stuðningsmennina og kenndi þeim lag um nýja stjórann Fótbolti Kristján Guðmundsson: Aldrei brot og mjög slök frammistaða hjá dómurum leiksins Íslenski boltinn „Þetta einvígi er rétt að byrja“ Handbolti Schauffele hélt út og tryggði sér sigur með fugli á átjándu Golf Meistararnir úr leik eftir stærstu endurkomu sögunnar Körfubolti Hefur fest rætur á Íslandi eftir örlagaríkt símtal Íslenski boltinn Indiana Pacers í úrslit Austurdeildarinnar eftir sigur í oddaleik Körfubolti Dagskráin í dag: Besta-deildin og úrslitaeinvígi Subway-deildarinnar Sport Uppgjör: FH - Afturelding 29-32 | Mosfellingar taka forystuna Handbolti Lærisveinar Freys einum leik frá því að takast hið ómögulega Fótbolti Fleiri fréttir „Við erum búnir að skrifa okkur í sögubækurnar“ Kristján Guðmundsson: Aldrei brot og mjög slök frammistaða hjá dómurum leiksins Hákon skoraði en Lille er á leið í umspil Kvaddi stuðningsmennina og kenndi þeim lag um nýja stjórann Lærisveinar Freys einum leik frá því að takast hið ómögulega Meistararnir köstuðu frá sér þriggja marka forystu Uppgjörið og viðtöl: Stjarnan - Breiðablik 3-4 | Rangur dómur réði úrslitum í framlengingu Albert kom inn af bekknum er Genoa tapaði gegn tíu Rómverjum Valur og Þróttur flugu inn í átta liða úrslit Þetta gerðist í lokaumferðinni í enska | City meistari og Jóhann Berg kvaddi Manchester City Englandsmeistari fjórða árið í röð United skemmdi kveðjupartý De Zerbi Skytturnar gerðu sitt en horfa samt á eftir titlinum Klopp kvaddi með sigri Ísak lagði upp mark í fyrsta byrjunarliðsleiknum Missti af rauðvínsglasi með Sir Alex Klopp segir að Liverpool verði í góðum höndum hjá Slot Ten Hag segir United í betri stöðu en fyrir ári Tapið í gær þýðir að Kane missir af enn einum titlinum Chelsea sækir undrabarn frá Brasilíu Var spáð falli en eru á leið í Meistaradeildina Ótrúlegir yfirburðir tryggðu tíunda bikarmeistaratitilinn Stutt gaman hjá Birki er Brescia missti af sæti í efstu deild AC Milan hleypti Torino inn í Evrópubaráttu Keflavík og Grindavík tryggðu sér sæti í átta liða úrslitum Jón Daði og félagar náðu ekki að koma sér upp um deild Hayes kvaddi Chelsea með fimmta titlinum í röð og Dagný komin í hóp Leiknir vann Breiðholtsslaginn og Njarðvík með fullt hús stiga Reus kvaddi með draumamarki og Leverkusen kláraði tímabilið ósigrað De Zerbi hættir hjá Brighton Sjá meira