Innlent

Bein út­sending: Forsætisráðherrarnir ræða við blaða­menn í Osló

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Ulf Kristersson, forsætisráðherra Svía, Jonas Gahr Støre, forsætisráðherra Noregs, og Katrín Jakobsdóttir á blaðamannafundi í Osló í lok október.
Ulf Kristersson, forsætisráðherra Svía, Jonas Gahr Støre, forsætisráðherra Noregs, og Katrín Jakobsdóttir á blaðamannafundi í Osló í lok október.

Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra fundar með forsætisráðherrum hinna Norðurlandanna í Osló í dag. 

Yfirskrift leiðtogafundarins er norræn samvinna í varnar- og öryggismálum. Sameiginlegur blaðamannafundur forsætisráðherranna fer fram klukkan 12:05 að íslenskum tíma.

Streymi frá fundinum má sjá hér að neðan.

Volodómír Selenskí Úkraínuforseti kom í óvænta heimsókn til Noregs í morgun en hann hefur síðustu daga verið í Bandaríkjunum til að afla Úkraínu stuðnings í stríðinu gegn Rússum.

Jonas Gahr Störe, forsætisráðherra Noregs, bauð Selenskí velkominn til landsins en hann mun ávarpa leiðtogafundinn.

Katrín situr fundinn ásamt þeim Sauli Niinistö, forseta Finnlands, sænska forsætisráðherranum Ulf Kristersson, Mette Frederiksen, forsætisráðherra Dana, og gestgjafanum Jonas Gahr Störe.

Að fundinum í Osló loknum mun Selenskí fara á leiðtogafund í Brussel þar sem búist er við að hann muni krefjast þess að Úkraína hefji aðildarviðræður við Evrópusambandið sem fyrst.

Í tilkynningu frá forsætisráðuneytisins segir að á fundinum verði rætt um áframhaldandi stuðning Norðurlandanna við Úkraínu. „Um er að ræða annan leiðtogafund Norðurlandanna og Úkraínu á árinu en fyrri fundurinn var haldinn í Helsinki í maí sl. Að loknum leiðtogafundinum mun forsætisráðherra eiga tvíhliðafund með Úkraínuforseta,“ segir í tilkynningunni.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×