Innlent

Kenna Sorpu um hærra matar­verð

Margrét Björk Jónsdóttir skrifar
Matfugl hefur hingað til keyrt um tvo gáma á dag í Sorpu, með með blóði, fiðri og innmat úr kjúklingi. Nú hefur Sorpa tilkynnt að hætt verði að taka við slíkum úrgangi.
Matfugl hefur hingað til keyrt um tvo gáma á dag í Sorpu, með með blóði, fiðri og innmat úr kjúklingi. Nú hefur Sorpa tilkynnt að hætt verði að taka við slíkum úrgangi. Vísir/Sara

Matfugl, einn stærsti framleiðandi kjúklingaafurða hér á landi, hefur boðað 3,2 prósenta hækkun á öllum vörum fyrirtækisins. Forstjóri segir hækkanirnar skýrast af auknum kostnaði varðandi sláturúrgang, þá helst breytingum sem Sorpa boðaði í síðustu viku. 

Eig­andi Matfugls er fjár­fest­inga­fé­lagið Langisjór sem á meðal annars leigufélagið Ölmu og sælgætisgerðina Freyju.

Helstu vörumerki Matfugls eru Ali kjúklingur, Íslandsfugl og Mói. Auk þess sérframleiðir Matfugl vörur fyrir stærstu matvöruverslanir landsins. Í tölvupósti sem byrgjum Matfugls var sendur þann 8. desember síðastliðinn kemur fram að vegna kostnaðarhækkana muni allar vörur frá fyrirtækinu hækka um 3.2 prósent. Hækkunin tekur gildi 27. desember næstkomandi. 

Undir bréfið skrifar Sveinn Jónsson, forstjóri Matfugls.

Tölvupósturinn sem Matfugl sendi viðskiptavinum sínum í síðustu viku.Vísir

Breytingar hjá Sorpu meginástæða hækkunarinnar

Í samtali við Vísi segir Sveinn að meginástæðu hækkunarinnar megi rekja til breytinga hjá Sorpu, sem tilkynnti í síðustu viku að hætt verði að taka á móti sláturúrgangi um áramótin.

„Fyrir svona rekstraraðila eins og okkur, sem eru keyra kannski tvo gáma á dag með blóði, fiðri og innmat úr kjúklingi, mismunandi fulla, þetta er rosalega skammur fyrirvari,“ segir Sveinn. 

Sorpa tilkynnti í síðustu viku að fyrirtækið myndi hætta að taka við sláturúrgangi.Vísir/Vilhelm

Sorpa hafi frá haustinu 2022 keyrt úrgangnum út í flóa að mestu leyti en nú þurfi fyrirtækið að finna aðra leið og keyra hann út sjálft að sögn Sveins, ekki sé hægt að safna þessu saman og koma í annan farveg.

„Það kostar á bilinu fjörutíu til fimmtíu krónur að losna við úrganginn. Við erum með tólf til fjórtán hundruð tonn, bara af úrbeiningaúrgangi, þetta eru miklar upphæðir.“

Loðdýrabændur hætta að vinna kjötfars úr kjúklingabeinum

Þessu til viðbótar segir Sveinn að mikið af úrgangi síðustu ára hafi farið í loðdýravinnslu. Nú sé hún að mestu leiti að leggjast af og margir loðdýrabændur að hætta um áramótin.

„Beinin á kjúklingum eru frekar mjúk. Megnið af því sem fellur til hjá okkur í kjötvinnslunni, það sem við úrbeinum, hefur verið notað í loðdýrafóður, til að búa til, það sem ætli það megi ekki segja að sé bara kjötfars eins og við þekkjum það. Þetta er bara hakkað niður og dýrin fóðruð á þessu, sum með bætiefnum og úrgangi úr fiski og öðru. Þetta hefur verið notað af loðdýrabændum á Suður og Norðurlandi.“

Loðdýrabændur hafa keypt mikið af úrgangi Matfugls og notað í fóður síðustu ár, en þeir fáu bændur sem eftir eru flestir að hætta um áramótin.Vísir/Magnús Hlynur

Sem fyrr segir taka hækkanir fyrirtækisins gildi á milli jóla og nýárs. Sveinn segir ákvörðunina tekna af vel ígrunduðu máli. Breytingarnar hjá Sorpu og loðdýrabændunum sé stærsti liðurinn í ákvarðanatökunni en auk þess spili verðhækkanir og boðaðar hækkanir á gjaldskrám inn í.

„Þetta er hóflegt, 3,2 prósent, segir Sveinn Jónsson,“ forstjóri Matfugls. 



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×