Lífið

Ari Bragi og Dóróthea eiga von á dreng

Svava Marín Óskarsdóttir skrifar
Fjölskyldan er búsett í Kaupmannahöfn.
Fjölskyldan er búsett í Kaupmannahöfn. Skjáskot

Tónlistarmaðurinn Ari Bragi Kára­son og unnusta hans Dórót­hea Jó­hann­es­dótt­ir eiga von á sínu öðru barni í apríl næstkomandi. Parið tilkynnti á Instgram í gær að von sé á dreng. 

Fyrir eiga þau eina stúlku, Ellen Ingu þriggja ára.

Í færslunni má sjá þegar parið sker svokallaða kynjaköku með hvítu kremi sem er blá að innan. 

Fjölskyldan er búsett í Kaupmannahöfn, nánar tiltekið í Valby, þar sem Ari Bragi starfar sem trompetleikari með fremstu jazz­tón­list­ar­mönn­um Dan­merk­ur. Dóróthea starfar sem svæðis­sölu­stjóri fyr­ir danska hönn­un­ar­fyr­ir­tækinu Design Letters.

Parið flutti til Danmerkur í ágúst 2021 í leit að nýjum og spennandi verkefnum og hafa nú komið sér vel fyrir í borginni og festu meðal annars kaup á raðhúsi.

Dórót­hea og Ari Bragi eru bæði þekkt innan íslenska frjálsíþróttaheimsins og eiga bæði glæstan feril að baki. Þess má geta að þau urðu bæði Íslandsmeistarar árið 2019 í 100 metra hlaupi.


Tengdar fréttir

Fjölskyldan í Kaupmannahöfn stækkar

Tónlistarmaðurinn Ari Bragi Kára­son og unnusta hans Dórót­hea Jó­hann­es­dótt­ir eiga von á sínu öðru barni. Parið tilkynnti gleðifregnirnar í sameiginlegri færslu á Instagram. 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×