Lífið

Bjóst ekki við að þau myndu „meika“ hvort annað

Svava Marín Óskarsdóttir skrifar
Gummi fór á skeljarnar í París í október 2022. Vægast samt rómantískt augnablik.
Gummi fór á skeljarnar í París í október 2022. Vægast samt rómantískt augnablik. Lína Birgitta

Stjörnukírópraktorinn Guðmundur Birkir Pálmason, þekktur sem Gummi kíró, og unnusta hans Lína Birgitta Sigurðardóttir athafnakona og áhrifavaldur, fögnuðu fjögurra ára sambandsafmæli á dögunum.

Í tilefni dagsins birtu þau myndir af þeim saman á Instagram með fallegum orðsendingum til hvors annars.

„4 ár frá fyrsta stefnu­móti og verið sam­an (nán­ast upp á dag) síðan, ég elska þig,“ skrifar Gummi við færsluna. 

Lína kveðst spennt fyrir framtíðinni með Gumma sér við hlið.

„4 ár með main man Gummi kíró. Aldrei hefði mér dottið í hug að við mynd­um enda sem par og hvað þá að meika hvort annað svona lengi. Elska þig ást­in mín og spennt fyr­ir fleiri æv­in­týr­um með þér!“ skrifaði Lína.

Vildu forðast allt slúður

Lína og Gummi höfðu verið góðir félagar um nokkurt skeið áður en þau fóru að líta hvort annað rómantískum augum. Gummi ákvað að láta til skara skríða og bjóða Línu á stefnumót en vissi ekki að hún átti bókaðan tíma hjá honum á Kírópraktorstöðinni morguninn eftir. 

Lína samþykkti boð Gumma þrátt fyrir vandræðalegan meðferðartíma. Þau ákvaðu að fyrsta stefnumótið skyldi fara fram í heimahúsi þar sem þau eru bæði frekar opinberar persónur og vildu forðast allt slúður. Gummi bauð Línu því heim í mat og hafa þau verið saman allar götur síðan. 

Parið trúlofaði sig í París í Frakklandi í október 2022 eftir að Gummi bað um hönd Línu í Tuileries Garden, rómantíkin uppmáluð.


Tengdar fréttir

Átti bókaðan tíma hjá Gumma daginn eftir að hann bauð henni á stefnu­mót

Lína Birgitta og Gummi Kíró höfðu verið góðir félagar um nokkurt skeið áður en þau fóru að líta hvort annað rómantískum augum. Gummi ákvað eitt kvöldið að láta til skarar skríða og bjóða Línu á stefnumót. Það sem hann vissi ekki var að hún átti bókaðan tíma hjá honum á Kírópraktorstöðinni morguninn eftir og varð sá tími vægast sagt vandræðalegur fyrir þau bæði.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×