Handbolti

Vítabaninn Elín Jóna: „Vá, voru þau fjögur? Í al­vörunni?“

Valur Páll Eiríksson skrifar
Elín Jóna fagnar einni af markvörslum sínum í dag.
Elín Jóna fagnar einni af markvörslum sínum í dag. EPA-EFE/Beate Oma Dahle

Elín Jóna Þorsteinsdóttir átti magnaðan leik er Ísland tapaði með níu marka mun fyrir Frökkum í D-riðli heimsmeistaramóts kvenna í handbolta í kvöld. Hún kveðst fara sátt á koddann.

Íslenska liðið byrjaði brösuglega og átti fá svör við gífurlega vel æfðu, hröðu og gæðamiklu frönsku liði sem komst 7-0 yfir. Eftir að hafa farið tíu mörkum undir til búningsherbergja í hálfleik vannst hins vegar seinni hálfleikurinn og munurinn að endingu níu mörk, 31-22.

Klippa: Vítabaninn Elín Jóna: Vá, voru þau fjögur? Í alvörunni?

Elín Jóna fagnar andlegum styrk íslenska liðsins og karakternum að gefast aldrei upp.

„Ég er ótrúlega stolt af liðinu. Við lendum aftur á erfiðri byrjun en gefumst ekki upp, erum með kassann úti og það er akkúrat það sem við vildum í þessum leik. Að gefast ekki upp, við unnum seinni hálfleik og ég er mjög glöð að við náðum því.“

„Þær eru með frábært lið, frábæra leikmenn í öllum stöðum og það er enginn veikur hlekkur hjá þeim neinsstaðar. Þetta var erfið byrjun en eins og ég segi er ég ótrúlega glöð að við hættum ekki og gáfum extra í,“ segir Elín Jóna.

Skemmtilegra eftir því sem leið á

Elín Jóna átti stóran þátt í því að Ísland hélt í við Frakka, ef svo má að orði komast, eftir því sem leið á. Hún varði oftar en einu sinni úr hraðaupphlaupum og varði alls 14 skot í leik þar sem flest færi Frakka voru dauðafæri.

„Þetta voru ekkert skemmtilegar fyrstu mínútur, sko. En svo fann maður aðeins ryþmann og það var gott að komast aðeins inn í leikinn,“ segir hógvær Elín Jóna.

Hún varði fjögur vítaskot af þeim fimm sem hún fékk á sig í leiknum. Aðspurð hvort hún hafi gert slíkt áður segir Elín:

„Aldrei, held ég. Það hefur aldrei gerst. Já, vá, fjögur? Í alvörunni? Já, ég er mjög stolt.“

Og ekki verra að gera það gegn Ólympíumeisturum Frakka á HM?

„Nei, nákvæmlega. Guð. Ég fer allavega glöð að sofa.“ segir brosandi Elín Jóna að lokum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×