Sport

Aaron Rodgers má byrja að æfa ellefu vikum eftir hásinaraðgerð

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Aaron Rodgers virðist vera að takast hið ómögulega en þarf auðvitað að komast yfir fleiri hindranir á leið sinni til baka inn á NFL völlinn.
Aaron Rodgers virðist vera að takast hið ómögulega en þarf auðvitað að komast yfir fleiri hindranir á leið sinni til baka inn á NFL völlinn. Getty/Rich Schultz/

Einhver ótrúlegasta endurkoma íþróttamanns eftir alvarleg meiðsli er nú einu skrefi nær því að verða að veruleika.

Þegar sáust myndir af Aaron Rodgers kasta boltanum fyrir leik New York Jets á dögunum þá var eflaust til efasemdarfólk sem hélt að þetta væri bara eitthvað plat.

Hvernig á maður sem sleit hásin í byrjun september geta snúið aftur til æfinga aðeins ellefu vikum síðar?

Stórstjarnan Aaron Rodgers er hins vegar að gera einmitt það. Jets tilkynnti í gær að Rodgers mætti byrja að æfa aftur með liðinu. Þeir tóku hann af meiðslalistanum og hafa til 20. desember til að meta stöðuna á honum.

Rodgers hefur sett sjálfur stefnuna á það að spila á móti Washington Commanders 20. desember næstkomandi.

Rodgers heldur upp á fertugsafmælið sitt á laugardaginn kemur en þótt að hann megi byrja að æfa þá er hann þó ekki kominn með grænt ljóst á að fara í átök. Hann æfir án snertinga til að byrja með og menn munu síðan meta stöðuna á honum dag frá degi.

Rodgers segir sjálfur að tvennt muni ráða endurkomu hans. Heilsan auðvitað og svo hvað mikla möguleika Jets liðið á að komast í úrslitakeppnina.

Robert Saleh, þjálfari Jets, segir að Rdgers muni spila ef hann vill spila og ef hann fær grænt ljós frá læknum.

NFL



Fleiri fréttir

Sjá meira


×