Veður

Hvít jörð í höfuð­borginni og slær í storm austan­til

Atli Ísleifsson skrifar
Margir munu þurfa að skafa af bílunum áður en haldið er af stað í vinnu eða skóla í dag.
Margir munu þurfa að skafa af bílunum áður en haldið er af stað í vinnu eða skóla í dag. Vísir

Íbúar á höfuðborgarsvæðinu og víðar á landinu vöknuðu upp við hvíta jörð í morgun og má gera ráð fyrir að margir muni þurfa að skafa af bílunum áður en haldið er af stað í vinnu eða skóla.

Veðurstofan spáir að óvenju mikill munur verði á vindhraða milli landshluta, en norðaustur af landinu er víðáttumikil lægð sem valdi hvassri norðvestanátt á austurhelmingi landins, og mun jafnvel slá í storm á Austfjörðum. Gul veðurviðvörun hefur verið gefin út á Austfjörðum vegna vinds.

„Fyrir vestan land er hæðarhryggur og þokast hann nær. Það þýðir að á vesturhelmingi landins verður hægur vindur í dag. Það má búast við því að sums staðar á Norður- og Austurlandi verði vart við lítlsháttar él, en annars staðar á landinu á að létta til. Kaldur loftmassi hefur færst yfir landið og því má búast við frosti í dag, allt að 8 stig í innsveitum.

Í nótt lægir vindinn austanlands. Á morgun er útlit fyrir fremur hæga suðlæga átt og þurrt veður, en vestanlands verður kaldi eða strekkingur og þykknar upp með dálítilli rigningu eða slyddu síðdegis,“ segir í hugleiðingum veðurfræðings.

Kaldur loftmassi hefur færst yfir landið og því má búast við frosti í dag, allt að 8 stig í innsveitum.Veðurstofan

Veðurhorfur á landinu næstu daga

Á föstudag: Suðlæg átt 3-10 m/s og víða bjartviðri. Þykknar upp á vestanverðu landinu eftir hádegi og lítilsháttar væta vestast undir kvöld. Frost 0 til 7 stig, en hlánar við suðvestur- og vesturströndina.

Á laugardag: Fremur hæg suðlæg eða breytileg átt. Skýjað á mestu á landinu, en yfirleitt þurrt. Hiti 0 til 5 stig.

Á sunnudag: Hæg breytileg átt og bjart með köflum. Hiti kringum frostmark, en allt að 5 stiga hiti við suður- og vesturströndina.

Á mánudag: Suðlæg átt og rigning eða slydda með köflum, en þurrt norðaustan- og austanlands. Hiti 1 til 6 stig.

Á þriðjudag: Breytileg átt með rigningu, slyddu eða snjókomu, en stöku él á vestanverðu landinu. Hiti kringum frostmark.

Á miðvikudag: Austan- og norðaustanátt með snjókomu eða slyddu, en bjart sunnan heiða. Kólnar heldur.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×