Innlent

Ellert Ei­ríks­son er látinn

Atli Ísleifsson skrifar
Ellert Eiríksson var kjörinn heiðursborgari Reykjanesbæjar af bæjarstjórn Reykjanesbæjar árið 2016 og varð þar með fyrstur til að hljóta þá nafnbót.
Ellert Eiríksson var kjörinn heiðursborgari Reykjanesbæjar af bæjarstjórn Reykjanesbæjar árið 2016 og varð þar með fyrstur til að hljóta þá nafnbót. Reykjanesbær

Ellert Eiríksson, fyrrverandi bæjarstjóri Reykjanesbæjar, er látinn, 85 ára að aldri. Hann lést á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja síðastliðinn sunnudag.

Sagt var frá andláti Ellerts á vef Víkurfrétta í gær.

Ellert fæddist í Grindavík árið 1938 og flutti til Keflavíkur þriggja ára gamall. Ellert stundaði ýmis störf þegar hann var ungur að árum, en á sjöunda áratugnum varð hann yfirverkstjóri hjá Áhaldahúsi Keflavíkurbæjar.

Ellert var Sjálfstæðismaður og var sveitarstjóri í Gerðahreppi á árunum 1982 til 1990 og svo bæjarstjóri Keflavíkur 1990 til 1994. Ellert varð svo fyrsti bæjarstjóri sameinaðs sveitarfélags Keflavíkur, Njarðvíkur og Hafna sem fékk nafnið Reykjanesbær árið 1994 og gegndi embættinu til 2002.

Hann var kjörinn heiðursborgari Reykjanesbæjar af bæjarstjórn Reykjanesbæjar árið 2016 og varð þar með fyrstur til að hljóta þá nafnbót.

Hann var einnig varaþingmaður Reyknesinga undir lok níunda áratugarins.

Eftirlifandi eiginkona Ellerts er Guðbjörg Sigurðardóttir. Þau eignuðust saman dótturina Guðbjörgu Ósk, en börn Ellerts frá fyrra hjónabandi eru Eiríkur, sem er látinn, Jóhannes og Elva. Börn Guðbjargar eru Sigurður Ingi, Páll og Una Björk.

Útför Ellerts verður frá Keflavíkurkirkju fimmtudaginn 23. nóvember klukkan 13.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×