Fótbolti

Mourinho: „Stór­kost­legt hvernig Pedro stingur sér til sunds“

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
José Mourinho er alltaf tilbúinn að vera með smá skæting.
José Mourinho er alltaf tilbúinn að vera með smá skæting. getty/Ivan Romano

José Mourinho, knattspyrnustjóri Roma, skaut föstum skotum að Pedro, leikmanni Lazio, eftir Rómarslaginn í gær. Hann sagði að Spánverjinn gæti gert góða hluti í annarri íþrótt.

Lazio og Roma gerðu markalaust jafntefli í ítölsku úrvalsdeildinni í gær. Leikurinn náði ekki miklum hæðum og til marks um það áttu liðin aðeins samtals þrjú skot á markið í honum.

Fyrir leikinn skaut Mourinho á Maurizio Sarri, stjóra Lazio, og sagði hann nánast ekkert hafa unnið á ferlinum. Mourinho var áfram í árásarham eftir Rómarslaginn og nú beindust skotin að Pedro.

Mourinho fannst spænski framherjinn nefnilega ekki nógu duglegur að standa í lappirnar.

„Pedro er frábær leikmaður en hann gæti líka verið sundmaður því það hvernig hann stingur sér til sunds er stórkostlegt,“ sagði Mourinho kaldhæðinn.

Roma er í 7. sæti ítölsku úrvalsdeildarinnar en Lazio í því tíunda.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×