Innlent

Fóru fram af hengju á snjóþotum

Samúel Karl Ólason skrifar
Einstaklingar á snjóþotum fóru fram af hengju og eru báðir taldir hafa fótbrotnað.
Einstaklingar á snjóþotum fóru fram af hengju og eru báðir taldir hafa fótbrotnað. Landsbjörg

Tveir sem voru að renna sér á snjóþotum í Seljalandsdal fyrir ofan Ísafjörð við botn Skutulsfjarðar, fóru fram af hengju og eru taldir hafa fótbrotnað. Björgunarsveitir frá Ísafirði og Hnífsdal voru kallaðar út á þriðja tímanum í dag vegna slyssins.

Í tilkynningu frá Landsbjörg segir að vel hafi gengið að komast að þeim slösuðu og að hlúa að þeim. Talið er að báðir hafi fótbrotnað við að fara fram af hengjunni.

Hinir fótbrotnu voru svo fluttir á sjúkrahúsið á Ísafirði til aðhlynningar.

Landsbjörg
Landsbjörg
Landsbjörg




Fleiri fréttir

Sjá meira


×