Fótbolti

Miðverðirnir tryggðu Juve sigurinn

Smári Jökull Jónsson skrifar
Markaskorararnir Bremer og Daniel Rugani fagna marki Juventus í dag.
Markaskorararnir Bremer og Daniel Rugani fagna marki Juventus í dag. Vísir/Getty

Juventus er komið í efsta sæti Serie A um stundarsakir að minnsta kosti eftir sigur á Cagliari í dag.

Fyrir leikinn var Juventus tveimur stigum á eftir toppliði Inter sem á leik gegn Frosinone á morgun.

Fyrri hálfleikur í dag var markalaus en í síðari hálfleik voru það tveir af miðvörðum Juventus sem skoruðu mörk með tíu mínútna millibili. Fyrst skoraði hinn brasilíski Bremer áður en Daniel Rugani bætti öðru marki við á 70. mínútu.

Alberto Dossena minnkaði muninn fimm mínútum síðar en þar við sat. Juventus fagnaði 2-1 sigri og tyllir sér þar með í toppsæti deildarinnar að minnsta kosti þar til á morgun.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×