Innlent

Sam­staða um Gasa á Al­þingi en pattstaða í á­tökum

Heimir Már Pétursson skrifar
Palestínsk fjölskylda flýr frá Gasaborg.
Palestínsk fjölskylda flýr frá Gasaborg. AP/Abed Khaled

Fulltrúar stjórnar- og stjórnarandstöðu náðu óvænt í dag samkomulagi um sameiginlega ályktun vegna átakanna á Gasaströndinni. Utanríkisráðherrar sjö helstu iðnríkja heims kalla eftir að Gasa verði áfram undir stjórn Palestínumanna en án Hamas.

Þórhildur Sunna Ævarsdóttir þingflokksformaður Pírata kvað sér hljóðs undir liðnum um fundarstjórn forseta í upphafi þingfundar í dag.

„Fram er komin tillaga frá utanríkismálanefnd allri sem sameinar alla flokka. Í skýrri tillögu sem er auðvitað ekki 100 prósent eins og ég hefði orðað hana sjálf. En mikilvæg málamiðlun, sem sendir mikilvæg og skýr skilaboð til bæði ráðherra og alþjóðasamfélagsins um stöðuna og afstöðu verði hún samþykkt,” sagði Þórhildur Sunna. Hún dró síðan þingsályktunartillögu Pírata til baka og það Gerði Sigmar Guðmundsson fulltrúi Viðreisnar í utanríkismálanefnd einnig.

Viðurkennir að málið hafi reynst erfitt

Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra viðurkennir að málið hafi reynst ríkisstjórninni erfitt eftir hjásetu Íslands við tillögu Jórdaníu hjá Sameinuðu þjóðunum um vopnahlé. Íslensk stjórnvöld hafi þó talað skýrt um þörf á tafarlausu vopnahléi og mikilvægi þess að alþjóða- og mannúðarlög væru virt. Eftir atburði síðustu vikna hafi íslensk stjórnvöld einnig tekið undir þá kröfu að atburðir á Gaza verði rannsakaðir.

„Hvort þar hafi verið um brot á alþjóðalögum að ræða að hálfu ísraelskra stjórnvalda. Þannig að fyrir þessu höfum við talað en vissulega greindi okkur á um afstöðuna í þeirri atkvæðagreiðslu sem hefur verið hvað mest til umræðu.”

Og samskiptin kannski ekki nógu góð á milli forsætis- og utanríkisráðuneytisins fyrir þessa atkvæðagreiðslu?

„Nei, nei og ég held að það skrifist á ráðuneytin okkar að þar hefði eitthvað getað betur farið.”

Katrín fagnar hins vegar því samkomulagi sem náðst hefur í utanríkismálanefnd. Þetta mál gæti vel verið erfitt fyrir einstaka félaga í Vinstri grænum og öðrum flokkum.

„En það skiptir engu máli í samanburði við þá atburði sem eru að eiga sér stað fyrir botni Miðjarðarhafs. Þær þjáningar sem við höfum séð þar. Fyrst eftir árás Hamassamtakanna og síðan í þeim viðbrögðum sem hafa fylgt að hálfu ísraelskra stjórnvalda með tilheyrandi mannfalli óbreyttra borgara. Við verðum auðvitað að muna að það er stóra málið,” segir Katrín.

Kalla eftir hléi

Utanríkisráðherrar sjö helstu iðnríkja heims, G7, ályktuðu einnig um átökin á Gasa á fundi í Tokyo í dag. Gera þyrfti hlé á átökum til að koma hjálpargögnum til íbúa Gasa og til framtíðar væri tveggja ríkja lausn eina sanngjarna niðurstaðan. Varanlegt vopnahlé væri þó ekki raunhæft á meðan Hamas hefði rúmlega 200 manns í gíslingu.

Antony Blinken utanríkisráðherra Bandaríkjanna sagði eftir G7 fundinn að þeir sem kölluðu eftir skilyrðislausu vopnahléi án þess að gíslunum yrði sleppt úr haldi yrðu að útskýra afleiðingarnar. Hamas hefði hótað því að endurtaka aftur og aftur sams konar árásir og liðsmenn þeirra gerðu hinn 7. október.

„Bandaríkin telja það lykilatriði að ekki verði um neina nauðungarflutninga Palestínumanna frá Gasa að ræða. Ekki núna og ekki eftir stríðið. Gasasvæðið verði ekki notað til hryðjuverkárása eða annars ofbeldis.

Engin herseta verði á Gasasvæðinu eftir að átökunum linnir. Engar tilraunir til að setja Gasasvæðið í herkví. Engar skerðingar á landsvæði Gasa,“ sagði Blinken.


Tengdar fréttir

Náðu saman með ályktun um vopnahlé

Utanríkismálanefnd komst að samkomulagi um tillögu að þingsályktun á fundi sínum í morgun sem snertir á kröfu um vopnahlé á Gasa, fordæmingu á hryðjuverkum Hamas-samtakanna í Ísrael og fordæmingu á verknaði Ísraelsstjórnar í kjölfarið. Tillagan verður tekin fyrir á þinginu á morgun.

Mikill meirihluti landsmanna óánægður með ákvörðunina

Sjö af hverjum tíu Íslendingum eru ósáttir við hvernig Ísland ráðstafaði atkvæði sínu í atkvæðagreiðslu um þingsályktunartillögu á þingi Sameinuðu þjóðanna um vopnahlé á Gasaströndinni. Þetta kemur fram í nýrri könnun Maskínu. Konur eru mun óánægðari en karlar. Þá er mestur stuðningur við ákvörðun Íslands hjá kjósendum Sjálfstæðisflokksins.

Ísraelskur fáni í Ráðhúsi Kaupmannahafnar umdeildur

Fólki sem átti leið hjá ráðhúsi Kaupmannahafnar í morgun sagðist hafa brugðið við að sjá ísraelskan fána hanga í glugga ráðhússins sem vísar út á H.C Andersensbreiðgötuna, eina mest förnu götu Kaupmannahafnar.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×