Madrídingar tryggðu sig á­fram í sex­tán liða úr­slit

Rodrygo vippaði boltanum fallega í öðru markinu
Rodrygo vippaði boltanum fallega í öðru markinu Vísir/Getty

Real Madrid tryggði sig áfram í 16-liða úrslit Meistaradeildarinnar með öruggum 3-0 sigri gegn Braga á Santiago Bernabeu. Madrídingar eru þar með aðrir til að tryggja sig áfram eftir að Manchester City varð fyrst til í gær. 

Brahím Díaz skoraði fyrsta mark leiksins á 27. mínútu eftir fyrirgjöf frá Rodrygo á hægri kantinum. Vinícius breikkaði bilið í upphafi seinni hálfleiks og Rodrygo var svo aftur á ferðinni í þriðja markinu þegar hann vippaði boltanum fallega yfir markvörð Braga. 

Nico Paz, 19 ára gamall leikmaður Real Madrid, þreytti frumraun sína fyrir félagið í kvöld þegar hann kom inn á völlinn á 77. mínútu fyrir Federico Valverde. 

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira