Innlent

Náðu saman með á­lyktun um vopna­hlé

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Diljá Mist Einarsdóttir, formaður utanríkismálanefndar.
Diljá Mist Einarsdóttir, formaður utanríkismálanefndar. Vísir/Vilhelm

Utanríkismálanefnd komst að samkomulagi um tillögu að þingsályktun á fundi sínum í morgun sem snertir á kröfu um vopnahlé á Gasa, fordæmingu á hryðjuverkum Hamas-samtakanna í Ísrael og fordæmingu á verknaði Ísraelsstjórnar í kjölfarið. Tillagan verður tekin fyrir á þinginu á morgun.

Logi Einarsson, þingmaður Samfylkingarinnar og 2. varaformaður utanríkismálanefndar staðfestir að samkomulag hafi náðst á fundinum í morgun.

Samkvæmt heimildum fréttastofu voru allir fundarmenn samþykkir tillögunni en fulltrúi Miðflokksins var ekki viðstaddur fundinn.

Píratar, ásamt tveimur þingmönnum Vinstri grænna og þingflokki Samfylkingarinnar, höfðu lagt fram þingsályktun um málið og Viðreisn hafði lagt fram aðra tillögu. 

Þórhildur Sunna Ævarsdóttir, þingmaður Pírata, segir í færslu á Facebook að flokkurinn muni falla frá þingsályktunartillögu sinni til að ná sem breiðastri samstöðu um málið. Hún reiknar með að tillagan verði rædd á þinginu á morgun.

Fjallað var um deilur um afstöðu Íslands í fréttum Stöðvar 2 í fyrrakvöld. Þar sagði Bjarni Benediktsson utanríkisráðherra að enginn ágreiningur væri innan ríkisstjórnarinnar um afstöðu Íslands.

Meirihluti Íslendinga óánægður

Sjö af hverjum tíu Íslendingum eru ósáttir við hvernig Ísland ráðstafaði atkvæði sínu í atkvæðagreiðslunni um þingsályktunartillögu á þingi Sameinuðu þjóðanna um vopnahlé á Gasaströndinni. Þetta kemur fram í nýrri könnun Maskínu. Konur eru mun óánægðari en karlar. Þá er mestur stuðningur við ákvörðun Íslands hjá kjósendum Sjálfstæðisflokksins.

Ísland sat hjá í atkvæðagreiðslunni líkt og Danir, Svíar og Finnar. Noregur var eitt Norðurlanda sem greiddi atkvæði með tillögunni. Kanada lagði til breytingu á tillögunni, sem 88 aðildarríki studdu þar á meðal Ísland, en þar var lögð meiri áhersla á fordæmingu Hamas. Breytingartillagan náði ekki fram að ganga.

Upphaflega tillagan var því samþykkt og kusu 120 lönd með tillögunni. 14 þjóðir, þar á meðal Bandaríkin, kusu á móti og 45 sátu hjá, þar á meðal Ísland.

Á dagskrá þingsins á morgun

Diljá Mist Einarsdóttir, þingmaður Sjálfstæðisflokksins og formaður utanríkismálanefndar Alþingis þakkaði nefndarmönnum kærlega fyrir samstarfið við upphaf þingfundar sem hófst klukkan 15 undir liðnum störf þingsins.

„Ég vil þakka háttvirtri utanríkismálanefnd kærlega fyrir samstarfið. Ég tek undir með háttvirtum þingmanni Þórhildi Sunnu Ævarsdóttur varðandi það hversu mikilvægt það er að þessi málamiðlun hafi náðst um þessi mikilvægu skilaboð frá Alþingi Íslendinga. Tillagan, málamiðlunin, byggir efnislega á ályktun Jórdaníu á allsherjarþingi Sameinuðu þjóðanna með breytingatillögu Kanada. Það er mikilvægt að Alþingi geti náð saman, allir flokkar þar, um eins erfitt og viðkvæmt mál og um ræðir. Ég hef samkvæmt samtali við hæstvirtan forseta vilyrði fyrir því að málið komist á dagskrá á morgun ef Alþingi samþykkir.“


Tengdar fréttir

Ísraelskur fáni í Ráðhúsi Kaupmannahafnar umdeildur

Fólki sem átti leið hjá ráðhúsi Kaupmannahafnar í morgun sagðist hafa brugðið við að sjá ísraelskan fána hanga í glugga ráðhússins sem vísar út á H.C Andersensbreiðgötuna, eina mest förnu götu Kaupmannahafnar.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×