Lífið

Glæsikerra súkkulaðierfingjans komin á einkanúmer

Svava Marín Óskarsdóttir skrifar
Gústi B gaf Prettyboitjokkó einkanúmerið PBT í afmælisgjöf.
Gústi B gaf Prettyboitjokkó einkanúmerið PBT í afmælisgjöf. Aðsend

Fjölmiðlamaðurinn Ágúst Bein­teinn Árna­son, bet­ur þekkt­ur sem Gústi B, gaf tónlistarmanninum, Pat­rik Snæ Atlasyni, eða Prettyboitjokkó, einkanúmerið PBT í 29 ára afmælisgjöf í síðustu viku. Slík gjöf kostar tæpar 70 þúsund krónur. 

„Hann hafði oft talað um að vilja fá einkanúmer á Porche’inn svo afmælið var kjörið tækifæri fyrir mig til að láta verða af þessu. Þetta hitti beint í mark og passar vel við poppstjörnu-vörumerkið hans að keyra um á merktum bíl,“ segir Gústi og hlær. 

Hann segist þó þurfa að gæta þess að Patrik leggi bílnum samviskusamlega nú þegar bíllinn er auðþekkjanlegri en áður. 

Gústi birti myndbrot á samfélagsmiðlinum TikTok sem sýndi viðbrögð Patriks þegar hann opnaði gjöfina. Óhætt er að segja að gjöfin hafi vakið mikla lukku. 

@gustib_1

BOOM! Hvernig finnst ykkur?!

Can't Tell Me Nothing - Kanye West

Patrik keyrir um á hvítum Porsche Cayenne E-hybrid sportjeppa. Grunnverð fyrir slíkan bíl eru tæpar 16,5 milljónir. Bíllinn er af árgerðinni 2018.

Áður keyrði Patrik um á ljósblárri sportbifreið af tegundinni, Porsche Taycan, sem hann hefði helst viljað í bleikum lit. Grunnverð á slíkum bíl eru tæpar fjórtán milljónir króna hér á landi.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×