Innlent

Sektar­miðar undir rúðu­þurrkum heyra sögunni til

Atli Ísleifsson skrifar
Álagningarseðlar munu birtast í heimabanka umráðamanns eða eiganda bílsins sem lagt hefur verið ólöglega.
Álagningarseðlar munu birtast í heimabanka umráðamanns eða eiganda bílsins sem lagt hefur verið ólöglega. Vísir/Vilhelm

Bílastæðasjóður Reykjavíkur mun hætta að prenta út álagningarseðla vegna stöðvunarbrotagjalda og setja undir rúðuþurrku bíla frá og með deginum í dag.

Í tilkynningu frá Reykjavíkurborg segir að þess í stað muni álagningarseðlar birtast í heimabanka umráðamanns eða eiganda bílsins og inn á persónulegu pósthólfi viðkomandi á Ísland.is.

„Þetta á við hvort sem lagt er á aukastöðugjald vegna þess að ekki er greitt fyrir stæði eða stöðubrotsgjald fyrir að leggja ólöglega.

Þetta er eitt af fyrstu skrefunum í innleiðingu nýrrar tækni í eftirliti með stöðvun og lagningu bifreiða, auk þess sem það er umhverfisvænna að sleppa prentun. Fyrst um sinn verða settir forprentaðir miðar undir rúðuþurrku, sem minna á þessa breytingu,“ segir í tilkynningunni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×