Lífið

Pacino greiðir fjórar milljónir í mánaðar­legt með­lag

Sólrún Dögg Jósefsdóttir skrifar
Al Pacino leikari og Noor Alfallah framleiðandi hafa verið saman í eitt og hálft ár.
Al Pacino leikari og Noor Alfallah framleiðandi hafa verið saman í eitt og hálft ár. Getty

Bandaríski leikarinn Al Pacino hefur samþykkt að greiða þrjátíu þúsund bandaríkjadali í mánaðarlegar meðlagsgreiðslur með fjögurra mánaða syni sínum, eða um 4,1 milljón króna. 

Slúðurmiðlar vestanhafs herma að Pacino og framleiðandinn Noor Alfallah hafi nú gert samkomlag um sameiginlegt forræði yfir syninum Roman, sem er fjögurra mánaða gamall. Parið staðfesti þó eftir að samkomulagið var gert að þau séu enn saman. 

Þá kemur fram að árlega greiði Pacino fimmtán þúsund dali, eða tvær milljónir króna í háskólasjóð drengsins. 

Afallah og Pacino hafa nú verið saman í rúmt ár en fimmtíu og fjögur ár eru á milli þeirra. Alfallah hefur áður átt í ástarsambandi með breska tónlistarmanninum Mick Jagger og þýsk-bandaríska fjárfestinum Nicholas Berggruen. Afallah og Pacino hafa nú verið saman í rúmt ár.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×