Sport

Majónes í kaffið strákurinn átti magnaðan fyrsta leik

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Will Levis er hér til hægri númer átta en hann leiddi Tennessee Titans til sigurs í sínum fyrsta NFL-leik og átti fjórar snertimarksendingar.
Will Levis er hér til hægri númer átta en hann leiddi Tennessee Titans til sigurs í sínum fyrsta NFL-leik og átti fjórar snertimarksendingar. Getty/Wesley Hitt

Meistarar Kansas City Chiefs töpuðu óvænt í NFL-deildinni í Denver í gær og taphrina San Francisco 49ers hélt áfram og er nú komin upp í þrjá leiki í röð. Maður helgarinnar var aftur á móti nýliðinn sem var „niðurlægður“ í nýliðavalinu.

Leikstjórnandinn Will Levis fékk loksins sitt fyrsta tækifæri með Tennessee Titans í gær en hann þurfti að bíða fram í áttundu viku til að fá að spila leik í deildinni.

Levis vakti mikla athygli þegar hvert liðið á fætur öðru ákvað að velja hann ekki í nýliðavalinu en hann þurfti að upplifa þau vonbrigði með myndavélarnar á sér í græna herberginu. Á endanum voru það Titans sem veðjuðu á hann en þó ekki fyrr en í annarri umferð eða með 33. valréttinum.

Levis hafði reyndar hneykslað suma með matarvenjum sínum en hann borðar banana með hýðinu og setur majónes út í kaffið sitt.

Beið og beið

Hann fékk ekki tækifæri fyrstu tvo mánuði tímabilsins en loksins kom það i leik á móti Atlanta Falcons þar sem aðalleikstjórnandi liðsins, Ryan Tannehill, gat ekki spilað vegna meiðsla.

Levis átti fjórar snertimarkssendingar í leiknum þar af þrjá þeirra á DeAndre Hopkins. Hann var aðeins þriðji leikmaðurinn í sögu NFL sem nær því í sínum fyrsta leik.

Hopkins hafði ekki fundið sig nógu vel með Tannehill en græddi heldur betur á áhættusömum löngum sendingum frá Levis enda rötuðu þrjár þeirra á hann og skiluðu sér í snertimarki.

Ekki gerst í 30 leikjum hjá Mahomes

Þetta var aftur á móti skelfilegur dagur fyrir Patrick Mahomes og félaga í Kansas City Chiefs. Hann glímdi við veikindi og þetta var í fyrsta sinn í þrjátíu leikjum sem hann átti ekki snertimarkssendingu. Chiefs liðið náði sér ekki á strik og steinlá 24-9 á móti Denver Broncos.

Denver hefur á stundum verið aðhlátursefni á leiktíðinni enda tapaði liðið meðal annars 70-20 fyrir Miami. Þetta var aftur á móti annars sigur liðsins í röð eftir sigur á Green Bay Packers í vikunni á undan.

San Francisco 49ers vann fimm fyrstu fimm leiki sína en tapaði þriðja leik sínum í röð í gær og það á heimavelli. Liðið tapaði 31-17 á móti Cincinnati Bengals. Bengals byrjaði tímabilið mjög illa en hefur unnið þrjá síðustu leiki sína.

Tap 49ers og 24-20 sigur Seattle Seahawks á Cleveland Browns þýddi að Seattle hoppaði upp fyrir San Francisco liðið í vesturriðli Þjóðardeildarinnar.

Ernirnir einir með besta árangurinn í deildinni

Philadelphia Eagles vann sinn sjöunda leik, nú 38-31 á Washington Commanders, og er nú liðið með besta árangurinn í deildinni, sjö sigra og eitt tap. Miami Dolphins og Dallas Cowboys unnu bæði stórsigra og Carolina Panthers varð síðasta liðið í deildinni til að vinna leik.

Jacksonville Jaguars er aftur á móti það lið sem er með lengstu lifandi sigurgönguna en 20-10 sigur liðsins á Pittsburgh Steelers var fimmti sigur liðsins í röð.

Minnesota Vikings vann sinn þriðja leik í röð, 24-10 sigur á Green Bay Packers, en hann var dýrkeyptur því leikstjórnandinn sleit hásin og verður ekki meira með á leiktíðinni.

  • Úrslitin úr leikjum NFL-deildarinnar um helgina:
  • Los Angeles Chargers - Chicago Bears 30-13
  • Arizona Cardinals - Baltimore Ravens 24-31
  • San Francisco 49ers - Cincinnati Bengals 17-31
  • Denver Broncos - Kansas City Chiefs 24-9
  • Seattle Seahawks - Cleveland Browns 24-20
  • Tennessee Titans - Atlanta Falcons 28-23
  • Carolina Panthers - Houston Texans 15-13
  • Pittsburgh Steelers - Jacksonville Jaguars 10-20
  • Dallas Cowboys - Los Angeles Rams 43-20
  • Green Bay Packers - Minnesota Vikings 10-24
  • Miami Dolphins - New England Patriots 31-17
  • Indianapolis Colts - New Orleans Saints 27-38
  • New York Giants - New York Jets 10-13
  • Washington Commanders - Philadelphia Eagles 31-38
  • Buffalo Bills - Tampa Bay Buccaneers 24-18
NFL



Fleiri fréttir

Sjá meira


×