Fótbolti

Albert Guð­munds­son er nú aftur marka­hæstur Ís­lendinga í Seríu A

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Albert Guðmundsson var hetja Genoa um helgina og stækkaði enn nafnið sitt á innkaupalista stærri félaga deildarinnar.
Albert Guðmundsson var hetja Genoa um helgina og stækkaði enn nafnið sitt á innkaupalista stærri félaga deildarinnar. Getty/Simone Arveda/

Albert Guðmundsson jafnaði íslenska markametið í Seríu A á Ítalíu þegar hann skoraði sigurmark Genoa um helgina.

Albert skoraði eina mark leiksins á 35. mínútu þegar Genoa vann sigur á Salernitana á heimavelli sínum.

Albert var þá enn á ný að nýta sér svæðið á milli varnar og miðju mótherjanna. Hann lék upp að teignum og afgreiddi boltann laglega niður í bláhornið.

Þetta var fjórða mark Alberts á þessu tímabili sem er bæting á meti sem hann hafði slegið með sínu þriðja marki fyrr í vetur en um leið var þetta hans fimmta mark á ferlinum í Seríu A.

Með því jafnaði hann markamet Emils Hallfreðssonar sem skoraði fimm mörk í Seríu A frá 2009 til 2019.

Albert og Emil eru nú þeir Íslendingar sem hafa skorað flest mörk í Seríu A.

Albert Guðmundsson á nú aftur markametið því langafi hans Albert Guðmundsson var fyrsti Íslendingurinn til að skora í ítölsku deildinni og var markahæstur þar til að Emil tók metið af honum árið 2014.

  • Flest mörk Íslendinga í Seríu A
  • Albert Guðmundsson (yngri) 5
  • Emil Hallfreðsson 5
  • Albert Guðmundsson (eldri) 2
  • Birkir Bjarnason 2



Fleiri fréttir

Sjá meira


×