Handbolti

Framkonur í verkfalli í kvöld og leik þeirra frestað

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Erna Guðlaug Gunnarsdóttir og félagar hennar í Framliðinu fengu frestun á leik sínum vegna Kvennaverkfallsins.
Erna Guðlaug Gunnarsdóttir og félagar hennar í Framliðinu fengu frestun á leik sínum vegna Kvennaverkfallsins. Vísir/Hulda Margrét

Kvennalið Fram í handbolta vildi taka þátt í Kvennaverkfallinu í dag eins og flestar konur hér á landi. Handknattleikssamband Íslands varð við beiðni þeirra.

Leikur Selfoss og Fram í sextán liða úrslitum bikarkeppni kvenna í handbolta átti að fara fram í kvöld en hann hefur nú verið færður aftur um einn dag að beiðni Framliðsins.

Rakel Dögg Bragadóttir, fyrrum fyrirliði íslenska landsliðsins og núverandi, aðstoðarþjálfari Fram, skilur ekki af hverju fleiri kvennalið vildu ekki fá frestun á degi Kvennaverkfallsins.

Rakel Dögg ræddi málið í íþróttafréttum sjónvarpsins í gær.

„Bæði leikmönnum, og mér, finnst skjóta skökku við að labba út af vinnustað en að vera svo skikkuð í að mæta í næstu vinnu. Það er í raun og veru staðan. Það er furðulegt að það sé verið að hvetja til þess að leggja niður störf, sýna samstöðu, en svo erum við skikkuð til að mæta á næsta stað. Í raun og veru er þetta líka meira en bara leikmenn, það eru starfsmenn í húsum og sjálfboðaliðar, svo það er að fleira að huga en bara einum handboltaleik,“ sagði Rakel Dögg Bragadóttir í samtali við Rúv.

Það kom Rakel líka á óvart að Fram sé eina liðið sem hafi farið fram á frestun.

„Það kemur mér á óvart. Ég ætla að viðurkenna það. Ég er hissa á að sjá ekki fleiri lið sem hafa farið fram á frestun. Það er oft þannig að þegar einhver stígur fyrsta skrefið að þá fylgja aðrir eftir. Auðvitað þurfa liðin að taka þessa umræðu innan síns hóps og taka afstöðu, en auðvitað vonumst við til þess að sjá meiri samstöðu hjá kvennaliðum,“ sagði Rakel Dögg.

Þrír aðrir leikir fara fram í Powerade bikar kvenna í handbolta í kvöld en það eru leikir HK og FH í Kórnum, leikur Stjörnunnar og Aftureldingar í Garðabænum og leikur Fjölnis og Gróttu í Fjölnishöllinni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×