Sport

Belichick kominn með 300 deildar­sigra eftir einkar ó­væntan sigur Pat­riots

Runólfur Trausti Þórhallsson skrifar
71 árs og enn í fullu fjöri.
71 árs og enn í fullu fjöri. EPA-EFE/CJ GUNTHER

New England Patriots vann óvæntan sigur í NFL-deildinni um helgina sem þýðir að Bill Belichick, þjálfari liðsins, hefur nú unnið 300 deildarleiki sem þjálfari. Aðeins tveir menn hafa unnið fleiri leiki í sögu NFL-deildarinnar.

Patriots hafa átt erfitt uppdráttar undanfarið og steinlágu til að mynda gegn bæði Dallas Cowboys og New Orleans Saints. Það var því ekki mikil bjartsýni að 300. sigurinn myndi koma gegn Buffalo Bills. Það var þó raunin en Patriots unnu 29-25 þökk sé snertimarki Mike Gesicki þegar aðeins 12 sekúndur voru til leiksloka. 

Þetta var aðeins annar sigur Patriots á tímabilinu í alls sjö leikjum. Þetta var hins vegar 300. deildarsigur Belichick og er hann þar af leiðandi einn af þremur þjálfurum í sögu NFL sem hefur unnið 300 deildarleiki, hinir tveir eru Don Shula (328) og George Halas (318).

Hinn 71 árs gamli Belichick á að baki átta sigra í Ofurskálinni sem þjálfari og því ljóst að sigrarnir eru mun fleiri ef úrslitakeppni NFL-deildarinnar er talin með. Hvað sem það varðar þá vildi hann ekki ræða afrek sín að leik loknum.

„Þetta er frábær en ég vil frekar einblína á liðið okkar og leiktíðina sem nú er í gangi. Við munum pæla í þessu síðar. Takk fyrir.“

Hvað önnur úrslit helgarinnar í NFL-deildinni varðar þá unnu Ernirnir frá Philadelphia góðan sigur á Höfrungunum frá Miami, 31-17. Um var að ræða stórleik helgarinnar en þarna voru tvö bestu sóknarlið deildarinnar að mætast. 

Þá ríkti mikil spenna fyrir einvígi leikstjórnenda liðanna en Jalen Hurts og Tua Tagovailoa voru saman í Alabama-háskóla og börðust um leikstjórnendastöðuna þar. Báðir áttu sín augnablik en gerðu að sama skapi stór mistök. Að endingu var það Hurts sem hafði betur.

Patrick Mahomes fór fyrir sínum mönnum í Kansas City Chiefs þegar Höfðingjarnir unnu Los Angeles Chargers á heimavelli sínum, Arrowhead. 

Lokatölur 31-17 í leik þar sem Mahomes kastaði fyrir fjórum snertimörkum. Chiefs hafa nú unnið sex af sjö leikjum sínum til þessa á leiktíðinni og eru til alls líklegir.

Önnur úrslit




Fleiri fréttir

Sjá meira


×