Lífið

Tim Burton og Mat­rix-stjarnan Moni­ca Bellucci nýtt par

Sólrún Dögg Jósefsdóttir skrifar
Belucci, 59 ára, og Burton, 65 ára, glæsileg á rauða dreglinum. 
Belucci, 59 ára, og Burton, 65 ára, glæsileg á rauða dreglinum.  AP

Kvikmyndagerðarmaðurinn Tim Burton og ítalska stórleikkonan Monoca Bellucci eru eitt nýjasta par Hollywood. 

Parið mætti saman á frumsýningu ítölsku bíómyndarinnar Diabolik Chi Sei?, þar sem Bellucci fer með eitt aðalhlutverka, á kvikmyndahátíðinni í Róm á dögunum.

Sextán ár eru frá fyrstu kynnum Burton og Bellucci en erlendir slúðurmiðlar herma að þau hafi farið að stinga saman nefjum eftir Lumiére Film Festival í Lyon í október. Samband þeirra hafi þó ekki verið opinberað fyrr en í sumar, þegar franskir miðlar greindu frá því.

Bæði eiga þau farsælan feril að baki en Burton hefur leikstýrt og framleitt tugi kvikmynda og sjónvarpsþátta, þar á meðal Edward Scissorhands, Beetlejuice og síðast Wednesday, sem nutu gríðarlegra vinsælda á streymisveitunni Netflix. 

Þá er Bellucci einna þekktust fyrir leik sinn í kvikmyndunum The Matrix Revolutions, The Matrix Reloaded og Malena.

Saman vinna þau nú að kvikmyndinni Beetlejuice 2, sem Burton leikstýrir. Bellucci fer þar með hlutverk eiginkonu titilpersónunnar Beetlejuice. 


Tengdar fréttir

Tim Burton endurvekur Addams fjölskylduna

Tim Burton mun glæða Addams fjölskylduna lífi í nýrri þáttaseríu fyrir Netflix en þetta verður í fyrsta skipti sem hann leikstýrir seríu. Þættirnir bera heitir Wednesday og er það tilvitnun í dóttur Addams fjölskyldunnar sem Jenna Ortega mun leika. 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×