Sport

„Sonur minn veit að það er eins gott fyrir hann að fæðast ekki í miðjum leik“

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Sean McVay fagnar með einum leikmanni sínum í Lso Angeles Rams liðinu.
Sean McVay fagnar með einum leikmanni sínum í Lso Angeles Rams liðinu. AP/Kevork Djansezian

Leikmennirnir hans eru vanir að hlusta á hann en hvað með ófæddan soninn? Sean McVay kallaði fram hlátrasköll á blaðamannafundi fyrir leik liðsins hans um helgina í NFL.

McVay er þjálfari Los Angeles Rams liðsins í NFL og varð á sínum tíma yngsti þjálfarinn í nútíma NFL þegar hann var ráðinn árið 2017 þá aðeins 31 árs gamall.McVay hefur staðið sig vel og gerði Rams meðal annars að NFL-meisturum í febrúar 2022.

Lífið er þó ekki bara amerískur fótbolta hjá kappanum og hann og konan hans Veronika Khomyn eiga von á sínu fyrsta barni. Khomyn er fyrrum úkraínsk fyrirsæta en þau giftu sig árið 2019.

Veronika er komin á steypirinn og á von á sér á hverri stundu.

McVay var spurður út í komu barnsins og þá sérstaklega hvort hann væri í hættu á því að missa af leik hjá liðinu. Los Angeles Rams fær Pittsburgh Steelers í heimsókn um helgina en ferðast svo til Dallas og Green Bay í næstu leikjum á eftir.

„Það er mikið gert úr því að ég sé að fara að missa af leik. Ég mun ekki missa af leik,“ sagði Sean McVay við fjölmiðlamenn.

„Sonur minn veit að það eins gott fyrir hann að fæðast ekki í miðjum leik,“ sagði McVay og fékk hlátrasköll að launum frá blaðamönnum.

Liðið fær loksins fríviku um miðjan nóvembermánuð en það er ólíklegt að barnið verði ekki komið í heiminn þá.

NFL



Fleiri fréttir

Sjá meira


×