Lífið

Wasabi kóngur selur miðbæjarperlu með útsýni yfir Bæjarins bestu

Svava Marín Óskarsdóttir skrifar
Ragnar hefur sett íbúð sína við Hafnartorg í Reykjavík til sölu.
Ragnar hefur sett íbúð sína við Hafnartorg í Reykjavík til sölu.

Ragnar Atli Tómasson frumkvöðull og stofnandi Wasabi Iceland hefur sett glæsilega íbúð sína við Kolagötu 21 til sölu. Ásett verð fyrir eignina er 104 milljónir. Útsýni er úr íbúðinni yfir líklega vinsælasta veitingastað landsins.

Íbúðin er 92,5 fermetrar að stærð, björt með aukinni lofthæð í nýlegu fjölbýlishúsi í hjarta miðborgarinnar. 

Anddyri hússins er tilkomumikið, flísalagt með vönduðum ítölskum Basalto flísum og grófum steinsteypuveggjum.

Arkitektar hússins eru PKdM arkitektar sem vinnur í samstarfi með Fernando de Mendonca og öflugu teymi arkitekta frá öllum heimshornum.Fasteignaljósmyndun

Eignin skiptist í tvö svefnherbergi, tvö baðherbergi og rúmgott alrými sem samanstendur af eldhúsi, stofu og borðstofu. 

Innanstokksmunir eignarinnar eru sérlega glæsilegir, má þar nefna íslenska og skandinavíska hönnun. 

Við borðstofuborðið eru Sjöurnar, hannaðar af danska arkitektinum og hönnuðinum Arne Jacobsen, sem hafa notið mikilla vinsælda hér á landi. 

Hinn formfagri glerlampi, PH 3½-2½, hannaður af danska hönnuðinum Louis Poulsen árið 1928 nýtur sín vel við hlið fiðrildastólsins, eða Butterfly Chair, sem hannaður var af þremur arkitektum í Argentínu árið 1938.

Stofa og borðstofa eru í opnu rými þaðan er útgengt á suðursvalir.Fasteignaljósmyndun
Sjónvarpstofa er notaleg með stórum glugga.Fasteignaljósmyndun

Út um glugga íbúðarinnar og af svölunum má fylgjast með mannlífinu og straumi ferðamanna, meðal annars á Bæjarins bestu - líklega best sótta veitingastað landsins.

Nánari upplýsingar má finna á fasteignavef Vísis. 

Forstofa er með spónlögðum fataskápum.Fasteignaljósmyndun
Rúmgóðar svalir úr stofu eru í suður.Fasteignaljósmyndun
Tvö baðherbergi eru í eigninni.Fasteignaljósmyndun
Barnaherbergið er sérlega fallegt.Fasteignaljósmyndun
Baðherbergi er innangengt úr hjónaherbergi.Fasteignaljósmyndun





Fleiri fréttir

Sjá meira


×