Fótbolti

Eitt fórnar­lamb skot­á­rásarinnar í Brussel var fasta­gestur á leikjum Svía

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Patrick Lundström lést í skotárásinni. Fjölskylda hans sendi fjölmiðlum þessa mynd af honum í sænsku landsliðstreyjunni.
Patrick Lundström lést í skotárásinni. Fjölskylda hans sendi fjölmiðlum þessa mynd af honum í sænsku landsliðstreyjunni. Lundström fjölskyldan

Patrick Lundström var skotinn til bana í aðdraganda leiks Belgíu og Svíþjóðar í undankeppni EM í vikunni. Fjölskyldan hans er skiljanlega í miklu áfalli en vildi minnast hans í sænskum fjölmiðlum.

Leik Belgíu og Svíþjóðar var hætt í hálfleik eftir að leikmenn og starfsmenn sænska landsliðsins fréttu fyrst af árásinni. Tveir Svíar voru drepnir í árásinni og voru þeir karlmenn, annar á sjötugsaldri og hinn á áttræðisaldri.

Árásin átti sér stað um klukkan sjö um kvöld á Boulevard d'Ypres sem er í um fimm kílómetra frá leikvanginum þar sem fótboltalandsleikurinn var spilaður.

Sænskir fjölmiðlar fengu leyfi frá fjölskyldu Patrick Lundström til að birta mynd af honum en þar má sjá hinn sextuga Patrick í sænsku landsliðstreyjunni.

„Öll fjölskyldan er í miklu áfalli enda hefur það óhugsandi gerst,“ sagði systkini Lundström í samtali við sænska ríkisútvarpið.

Patrick var mikill áhugamaður um knattspyrnu og horfði á flesta leiki sænska landsliðsins. Hann var frá Sundsvall en bjó í Stokkhólmi.

„Hann var mikill fótboltaáhugamaður og fylgdi ekki aðeins vel með sænska landsliðinu í gegnum og líka í gegnum mótlæti, heldur fylgdist hann með öllum fótbolta. Hann hafði gríðarlegan áhuga á fótboltanum. Hann var líka alltaf í sænska landsliðsbúningnum, skrifuðu systkini hans í yfirlýsingu til sænskra fjölmiðla.

Þau vildu einnig senda samúðarkveðjur til annarra fórnarlamba voðaverksins.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×