Körfubolti

Fyrrum kærasta segir NBA stjörnuna ekki hafa slegið sig

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Kevin Porter Jr. átti mjög tímabil með Houston Rockets í fyrravetur.
Kevin Porter Jr. átti mjög tímabil með Houston Rockets í fyrravetur. AP/Jacob Kupferman

Fyrrum kærasta NBA leikmannsins Kevin Porter Jr. hefur stigið fram og sagt frá því að NBA stjarnan hafi ekki slegið sig í átökum þeirra á hóteli í New York í síðasta mánuði.

Lögreglan í New York handtók Porter fyrir heimilisofbeldi eftir atvikið og síðan hefur körfuboltaferill hans verið í mikilli óvissu.

Gamla kærastan heitir Kysre Gondrezick og er fyrrum leikmaður í WNBA-deildinni.

„Hann kreppti aldrei hnefann og sló mig. Hann sló mig heldur alls ekki mörgum sinnum í andlitið. Það er lygi. Ég bar enga áverka sem sýndu slíkt,“ sagði Kysre Gondrezick í viðtali við New York Post.

Það gekk aftur á móti ýmislegt á milli þeirra þetta kvöld. Porter fékk á sig ákærur um mörg brot en lögreglan hefur að minnsta kosti dregið eina til baka sem var að hann hefði brotið hryggjarlið í hálsi hennar.

Gondrezick segir að lögreglan hafi ekki talað við sig áður en hún birti lista yfir meiðsli hennar í þessum átökum parsins.

„Þetta gerðist mjög hratt en alls ekki eins og hefur fjallað um í fjölmiðlum. Þetta var rifrildi í herberginu sem entist bara í tíu sekúndur,“ sagði Gondrezick.

Porter er ekki lengur leikmaður Houston Rockets því félagið losaði sig við hann í skiptum við Oklahoma City Thunder. Thunder-menn eru aftur á móti sagðir ætla að losa sig við hann strax.

Porter verður því væntanlega atvinnulaus fljótlega. Hann átti mjög gott tímabil í fyrra þar sem hann var með 19,2 stig, 5,7 stoðsendingar og 5,3 fráköst að meðaltali í leik.

Kevin Porter Jr. skrifaði undir framlengingu á samningi sínum við Houston í október 2022 en það var fjögurra ára samningur þar sem félagið átti síðan möguleika á að bæta við einu ári.

Porter hefur fengið samtals átta milljónir dollara fyrir fyrstu fjögur tímabilin sín en átti að fá 15,8 milljónir fyrir komandi tímabil sem og fyrir hvert tímabil næstu tvö tímabil á eftir. 15,8 milljónir dollara eru tæpir 2,2 milljarðar íslenskra króna.

NBA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×