Lífið

Sturla Atlas festir kaup á 47 fermetra stúdíóíbúð

Svava Marín Óskarsdóttir skrifar
Sturla Atlas í hlutverki Rómeó í Þjóðleikhúsinu.
Sturla Atlas í hlutverki Rómeó í Þjóðleikhúsinu. Vísir/Vilhelm

Leikarinn Sigurbjartur Sturla Atlason, þekktur sem Sturla Atlas, festi kaup á glæsilegri stúdíóíbúð við Mýrargötu í Reykjavík, á 51,5 milljónir króna.

Um er að ræða 47,4 fermetra íbúð á annarri hæð í nýju fjölbýlishúsi. Eignin er hönnuð af innanhúshönnuðinum Sæbjörgu Guðjónsdóttur, þekkt sem Sæja. 

Íbúðin er björt og vel skipulögð þar sem svefnherbergi er stúkað af við stofu. Eldhúsinnrétting er hvít með skápum upp í loft og quartz stein á borðum.

Baðherbergið er mínímalískt.Lind og Spilda
Hvít og einföld eldhúsinnrétting.Lind og Spilda
Svefnherbergi er stúkað af með vegg við stofu.Lind og Spilda
Lind og Spilda
Úr íbúðinni er fott útsýni yfir Granda þar sem hægt er að fylgjast með hvort röðin sé löng í ísbúðinni Valdísi.Lind og Spilda

Sturla er einn ástsælasti leikari landsins og  hefur sömuleiðis getið sér gott orð í tónlistinni. Hann fer um þessar mundir með stórt hlutverk í leikritinu Ást Fedru á fjölum Þjóðleikhússins í leikstjórn Kolfinnu Nikulásdóttur.

Þá fór hann með hlutverk Rómeó í Rómeó og Júlíu eftir William Shakespeare í leikstjórn Þorleifs Arnar Arnarssonar.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×