Sport

NFL-aðdáendur orðnir þreyttir á endalausum myndum af Taylor Swift

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Taylor Swift skemmti sér vel á leik New York Jets og Kansas City Chiefs á MetLife leikvanginum.
Taylor Swift skemmti sér vel á leik New York Jets og Kansas City Chiefs á MetLife leikvanginum. getty/Elsa

Samband nýjasta ofurparsins í skemmtanabransanum hefur vakið mikla athygli. Ekki eru þó allir sáttir með hversu mikil athyglin á því er.

Svo virðist sem NFL-leikmaðurinn Travis Kelce hafi nælt í eina vinsælustu tónlistarkonu heims, sjálfa Taylor Swift.

Hún var í einkastúku Kelce-fjölskyldunnar á leik Kansas City Chiefs og Chicago Bears um þarsíðustu helgi og var aftur mætt þegar Chiefs mætti New York Jets í gær.

Í beinni útsendingu NBC frá leiknum var myndavélinni margoft beint upp í stúku að Swift og vinum hennar. Þar á meðal voru góðvinir Swifts, leikarahjónin Blake Lively og Ryan Reynolds.

Einhverjum hörðum NFL-aðdáendum fannst nóg um hversu oft myndavélinni var beint upp í stúku, sérstaklega þegar sýnt var frá Swift eftir að Höfðingjarnir skoruðu sitt fyrsta snertimark í leiknum. Létu þeir óánægju sína í ljós á samfélagsmiðlum.

Chiefs sigraði Jets, 23-20, og hefur unnið þrjá af fyrstu fjórum leikjum sínum á tímabilinu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×