Handbolti

Íslandsmeistararnir unnu | Enginn Aron er FH vann Víking

Dagur Lárusson skrifar
ÍBV hafði betur gegn Haukum
ÍBV hafði betur gegn Haukum Vísir/Vilhelm

Íslandsmeistarar ÍBV höfðu betur gegn Haukum í Olís deild karla í kvöld en FH og Valur unnu einnig sína leiki.

Í Vestmannaeyjum tók ÍBV á móti Haukum í viðureign sem var einnig úrsliteinvígið um Íslandsmeistaratitilinn í vor þegar ÍBV hafði betur.

Á fyrstu tíu mínútum leiksins náði ÍBV að koma sér upp smá forskoti en á tímabili var ÍBV með þriggja marka forskot. En leikmenn Hauka voru ekki á þeim buxunum að gefast upp og náðu að jafna leikinn rétt áður en flautað var til hálfleiks en Guðmundur Bragi fór sem fyrr fyrir sínu liði.

Í seinni hálfleiknum náði ÍBV aftur tökum á leiknum með Elmar Erlingsson í broddi fylkingar en hann skoraði tólf mörk og var markahæstur í leiknum. Markahæstur hjá Haukum var Guðmundur Bragi með átta mörk. Lokatölur 30-26.

Í Kaplakrika tóku FH-ingar á móti Víkingum þar sem það dró til tíðinda strax í byrjun leiks þar sem Aron Pálmarsson virtist vera fjarri góðu gamni þó svo að hann hafi verið í leikmannahópnum. En fjarvera landsliðsfyrirliðans skipti þó ekki sköpum því FH var með forystuna allan leikinn og vann að lokum 30-21. Einar Örn Sindrason var markahæstur hjá FH með sex mörk á meðan Jóhann Reynir var markahæstur hjá Víking með fimm mörk.

Á Selfossi tóku heimamenn á móti Val sem hafa farið virkilega vel af stað á tímabilinu og leikurinn í kvöld var engin undantekning. Hans Jörgen Ólafsson var markahæstur í þessum leik með sjö mörk en markahæstur hjá Val var Úlfar Páll Monsi Þórðarson með sex mörk. Björgvin Páll fór einnig á kostum í marki Vals en hann varði tuttugu skot og þar af tvö vítaskot. Lokatölur 19-32.

Eftir leiki kvöldsins er Valur með fullt hús stiga í efsta sætinu á meðan FH og ÍBV eru bæði með fjögur stig.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×