Innlent

„Geta notað gryfjuna við Ár­bæjar­kirkju, hent okkur ofan í og mokað yfir“

Bjarki Sigurðsson skrifar
Theódór Óskarsson segir það fráleitt ef loka eigi félagsheimilinu.
Theódór Óskarsson segir það fráleitt ef loka eigi félagsheimilinu. Vísir/Einar

Eldri borgarar í Árbænum eru uggandi yfir orðrómi um hugsanlega lokun félagsmiðstöðvar þeirra. Borgarfulltrúi minnihlutans segir fráleitt eigi þetta við rök að styðjast og kallar eftir betri upplýsingagjöf frá velferðarsviði. 

Fyrir helgi greindi Morgunblaðið frá neyðarkalli eldri borgara í Árbænum vegna þess sem þeir kalla „síendurteknar hótanir“ frá borginni um að loka eigi félagsmiðstöðinni við Hraunbæ 105.

Daginn eftir svaraði leiðtogi öldrunarmála hjá Reykjavíkurborg og sagði að ekki væri unnið að neinu slíku hjá öldrunarsviði. Engin áform væru um að breyta félagsmiðstöðinni í skrifstofuhúsnæði.

Björn Gíslason, Árbæingur og borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins, frétti af áhyggjum eldri borgaranna og fundaði með þeim í fyrradag.

Er hann skoðaði málið komst hann að því að starfshópur innan velferðarsviðs væri að skoða félagsmiðstöðvar borgarinnar heildrænt. Mögulega ætti að breyta miðstöðinni í Árbæ í samfélagsmiðstöð. 

Björn Gíslason er Árbæingur og borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins.Vísir/Einar

Samkvæmt upplýsingum frá velferðarsviði Reykjavíkurborgar hefur hópurinn það hlutverk að kortleggja húsakynni og starfsemi félagsmiðstöðva borgarinnar. Á hópurinn að skoða hvort þau henti sem samfélagshús og koma jafnframt með tillögur um framtíðarnýtingu húsnæðis sem nú er nýtt undir félagsstarf. Björn segir starfshópinn valda ugg meðal þeirra sem mæta í félagsmiðstöðina.

„Fólkið var kvíðið, það verður bara að segja eins og er. Þetta er mikið mál fyrir íbúana því við viljum að fólk sé sem lengst heima, þá er nauðsynlegt að hafa aðgang að svona félagsmiðstöð eins og her í Hraunbæ 105. Þetta er mikið lýðheilsumál. Þannig þetta er algjörlega fráleit hugmynd, ef þessi sparnaðaráform eiga að vera þannig að það eigi að fara loka eða sameina einhverjar frístundamiðstöðvar, það er ekki inni í myndinni í mínum huga. Þetta er sá flokkur sem síst á að spara í, við viljum að fólk sé sem lengst heima,“ segir Björn. 

Prjónaklúbbur hittist vikulega í félagsheimilinu.Vísir/Einar

Hann segir íbúa þurfa að fá meiri upplýsingar frá borginni svo það lifi ekki í þessum ótta.

Theódór Óskarsson er einn Árbæinga sem sækir miðstöðina í gríð og erg. Hann býr í Hraunbæ 103, blokk sem er samtengd félagsmiðstöðinni en meðalaldurinn í húsinu er 84 ár. Hann óttast að Árbæingum verði gert að ferðast í Grafarvog til þess að komast í félagsmiðstöð.

„Þið getið rétt ímyndað ykkur hvort menn með göngugrindur, hækjur og hjólastóla. Fara að sækja þetta í Grafarvog. Það fer enginn. Þeir geta notað gryfjuna við Árbæjarkirkju og hent okkur þar ofan í og mokað yfir,“ segir Theódór. 



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×