Sigur í fyrsta Meistara­deildar­leik Skyttanna í langan tíma

Smári Jökull Jónsson skrifar
Bukayo Saka fagnar sínu fyrsta Meistaradeildarmarki.
Bukayo Saka fagnar sínu fyrsta Meistaradeildarmarki. Vísir/Getty

Arsenal er mætt til leiks í Meistaradeildinni eftir sex ára fjarveru. Liðið mætti í kvöld hollenska liðinu PSV á heimavelli sínum í Lundúnum og þurftu lítið að hafa fyrir stigunum þremur.

Bukayo Saka kom Arsenal yfir snemma leiks með góðu marki leikmenn Arsenal voru síður en svo hættir. Leandro Trossard og Gabriel Jesus bættu við mörkum í fyrri hálfleiknum. Fyrirliðinn Martin Ödegaard skoraði fjórða mark Skyttanna tuttugu mínútum fyrir leikslok og gulltryggði 4-0 sigur og PSV sá aldrei til sólar í leiknum.

Þetta er í fyrsta sinn í sex ár sem Arsenal leikur í Meistaradeildinni og óhætt að segja að lærisveinar Mikel Arteta byrji vel.

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira