Kane skoraði í marka­veislu gegn United

Smári Jökull Jónsson skrifar
Harry Kane skoraði úr vítaspyrnu fyrir Bayern Munchen í kvöld.
Harry Kane skoraði úr vítaspyrnu fyrir Bayern Munchen í kvöld. Vísir/Getty

Í Munchen tóku heimamenn í Bayern á móti lærisveinum Erik Ten Hag í Manchester United. Leroy Sane og Serge Gnabry komu Bayern í 2-0 í fyrri hálfleik en danski framherjinn Rasmus Hojlund minnkaði muninn strax í upphafi síðari hálfleiks.

Bayern fékk síðan vítaspyrnu þegar Christian Erikson fékk boltann í höndina af stuttu færi. Harður dómur en Harry Kane var sama um það og skoraði af feikna öryggi. Staðan orðin 3-1 fyrir Bayern.

Casemiro jafnaði metin með skondnu marki skömmu fyrir leikslok áður en varamaðurinn Mathys Tel innsiglaði sigur Bayern í uppbótartíma. Casemiro tókst reyndar að bæta við öðru marki sínu skömmu áður en flautað var til leiksloka og minnka muninn í 4-3. Það urðu lokatölur leiksins, markaveisla í Þýskalandi.

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira