Sport

Mahomes fékk launaleiðréttingu

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Sá besti er kominn á eðlilega laun miðað við aðrar stjörnur NFL-deildarinnar.
Sá besti er kominn á eðlilega laun miðað við aðrar stjörnur NFL-deildarinnar. vísir/getty

Besti leikmaður NFL-deildarinnar, Patrick Mahomes, skrifaði í gær undir nýjan samning við Kansas City Chiefs sem er sögulegur.

Gamla samningnum hans við félagið var breytt og hann fær í raun launaleiðréttingu. Nýi samningurinn er núna frá 2023 til 2026 og á þessum fjórum árum fær hann 210,6 milljónir dollara eða tæplega 29 milljarða íslenskra króna.

Þetta er það mesta sem leikmaður í deildinni hefur fengið fyrir fjögurra ára samning.

Íslandsvinurinn Mahomes varð launahæsti leikmaður NFL-deildarinnar árið 2020 er hann skrifaði undir tíu ára samning upp á 450 milljónir dollara.

Enginn hefur toppað þann samning í heildarverðmætum en átta leikstjórnendur voru að fá hærri árslaun en Mahomes. Það gekk augljóslega ekki upp. Tengdasonur Mosfellsbæjar er nú á svipuðum slóðum og aðrir launahæstu leikmenn deildarinnar.

Joe Burrow, leikstjórnandi Cincinnati Bengals, skrifaði á dögunum undir stærsta samning í sögu deildarinnar er hann gerði fimm ára samning upp á 275 milljónir dollara.

NFL



Fleiri fréttir

Sjá meira


×