Innlent

Bjarni Fel er látinn

Samúel Karl Ólason skrifar
Bjarni Fel var andlit enska boltans á Íslandi um langt árabil.
Bjarni Fel var andlit enska boltans á Íslandi um langt árabil. vísir/hag

Bjarni Felixson, fyrrverandi landsliðsmaður í fótbolta og íþróttafréttamaður, er látinn. Bjarni, sem var þekktur sem Rauða ljónið, var 86 ára gamall og lést í Danmörku, þar sem hann var að sækja jarðarför vinar síns.

Þetta kemur fram í frétt Ríkisútvarpsins þar sem sagt er frá andláti Bjarna. Bjarni skilur eftir sig eiginkonu, fjögur börn og fjórtán barnabörn og barna-barnabörn.

Bjarni fæddist árið 1936 og spilaði hann lengi fyrir KR á árum áður og vann marga titla með félaginu.

Hann lýsti lengi enska boltanum í útvarpi og í sjónvarpi en hætti því árið 2010. Það var eftir 42 ára starf á þessu sviði. Hann fékk svo fálkaorðuna í fyrra fyrir störf á sviði íþróttamála, félagsmála og miðlunar.

Bjarni var upprunalega ekki kallaður Rauða ljónið heldur Rauði tuddinn, eins og hann sagði í viðtali fyrir bikarúrslitaleik KR og Stjörnunnar árið 2012.

„Ég held að þetta hafi byrjað þannig að ég var með eldrautt hár í yngri flokkum KR. Ég þótti nú frekar harður í horn í taka, þó ég væri nú bakvörður.“

Árið 2016 fjallaði Guardian um það hvernig Bjarni hefði komið enska boltanum inn á heimili Íslendinga og var honum lýst sem þjóðargersemi.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×